stress.is |
föstudagur, september 20, 2002 hæ. eruð þið ekki hress. hallur er ekki hress. það hjólaði maður á hann í morgun og slammaði rúðunni í mask. svo er kallinn að kaupa sér ísskáp og þvottavél. endalaus útgjöld. hvað er kallinn að spá að yfirgefa mig. no more spóla á mánudögum (og þriðjudögum,fimmtudögum og sunnudögum). Og við hvern á ég að fara í pílukast? Hver á hjálpa mér með stærfræðina - nei þetta var too much - gat ekki passað. nóg um sekkinn. það kom í ljós að ég hitti fjórða flokkinn 218 sinnum á nýliðnu tímabili, þar hafið þið það. toppið það. sumir koma eflaust með setninguna; "get a life" - en ég er sáttur. datt niður í Vogaskóla áðan - stutt þanngað til ég byrja að kenna þar. hvernig kennari ætti ég að vera - strangur eins og gunninga eða superslowmo eins og bjöggi. held ég verði þarna í miðjunni. er það ekki best. jæja, farinn að hreyfa mig. bleds.posted by 4fl at 12:01 e.h. mánudagur, september 16, 2002 velkomin!! laglegt af þér að kíkja á kallinn. vertu nú dugleg/ur að kíkja hér inn - spurning um að setja þessa síðu sem upphafssíðu!! alla veganna. stuð og stemmning. úrvalsdeild.is - a.riðill.is - djellingar.is. nú er bara að setja sig í haustfílingin - setja á sig húfu og fara að læra. nú er ég farinn að hljóma eins og bjöggi - tek etta á mig. bið að heilsa ykkur. sendið mér svo eitthvað slúður á ingvisveinsson@hotmail.com - þið eruð ekki að standa ykkur í slúðrinu. æju.posted by 4fl at 11:28 f.h. djöfull er mar actívur. enn að jafna mig!! pabbi er samt ekki búinn að jafna sig. west ham í neðsta sæti í deildinni. hann er algerlega ekki sáttur. liverpool þéttir á móti bolton. vorum í aðferðafræði. svakalega var það leiðinlegt. eysteinn og garðar að brillera; eysteinn kominn með heftara og garðar tréliti. það gengur náttúrulega ekki. æja. var náttúrulega bestur í 2 on 2 í gær. hallur í skvass skónum sínum, óskar bara subbulegur og bjöggi gersamlega á hælunum. vann samt bara tvo leiki af sex. dapurt. ok sir.posted by 4fl at 10:51 f.h. sunnudagur, september 15, 2002 sæl og bless. hvar á ég að byrja?? jæja, reynum. við komumst upp í úrvalsdeild í gær. það er náttúrulega bara snild. ingvi 18 ef maður stendur sig!! eins gott - mar verður ekki frikken bekkjarsulta tvö ár í röð - ó nei. eins og áhorfendur sáu (eða sáu ekki) í gær - þá kom kallinn ekki inn á. frekar spældur - en svonar er þetta - búinn að gleyma þessu - eins og með sjálfsmarkið í fyrra!! áfram með þetta bara. svaka djamm í gær - duttum til fjalla og svo á ölver. menn mis ölvaðir - en allir jafn kátir. hallur bara nettur að vanda - tók nokkur í karókí - mamma og sigrún frænka mættu meiri segja á svæðið. nettar. alltaf nett að fá mömmu sína með á djammið. jæja. verður mar ekki að fara að skella sér í enskuverkefnið - klukkan ekki nema tólf þannig að það eru en einn og hálfur tími til stefnu. að lokum er hér einn nettur listi með topp fimm qotes frá halla:posted by 4fl at 11:43 e.h. |