miðvikudagur, ágúst 08, 2007
jó.
stutt verslunarmannahelgarskýrsla. tommi var veikur fram eftir viku þannig að við duttum á lördag austur í bústað. byrjuðum í fljótshlíðinni hjá Magga og co. Fékk þar humar í fyrsta skipti ever. bara nokkuð gott kaffi. baldur fékk svo sekt fyrir að beil!
duttum svo í svaðalegt kaffi til ömmu og afa. óskar og frú létu meir að segja sjá sig. svo var það bústaðurinn á Laugarvatni hjá ömmu bínu. mega kosý. ég og bro bjuggum svo til killer krikket brautir. óskars braut féll samt í skuggann á minni hönnun! svo bara snemma í bæinn á mán.
þar sem ég er sean bean fan leyfði ég guðrúnu að leigja the hitcher í gær. ekki nógu sterk. stefni svo á the movies í kvöld þar sem óskar fær að ráða.
Mamma og systa staddar í barcelona. Egillb í new york. lúxus á þessu liði. eins gott að þau séu með smá innkaupalista frá mér.
tómas ari: "hver er þessi hallur"?
kominn með hálf árs birgðir af linsum. fanný með gott plögg. hata samt svo innilega að setja þær í/taka þær úr. og feilsendingarnar eru samt still there!
laters.
posted by 4fl at 9:25 e.h.
|