laugardagur, maí 14, 2005
Jev.
veit ekki með "það var lagið" í gær! kíkti nú bara á það því rækjan var "in the stands" - þær bara misstu sig dömurnar sem voru að keppa. hvernig ætli sé að hanga upp í stúkunni allann þáttinn! maður þarf bara kannski að prufa.
já menn eru þreyttir eftir vikuna! strembin vika. en frí í dag og svo létt æfing á morgun. stutt í fyrsta leik. og eins gott að garðar og doddi láti sjá sig upp á skaga.
sofnaði yfir Alfie í gær. eins og ég var nú ferskur þegar við ýttum á play. ótrúlegt.
er nú að pína mig að fara yfir snorra sturluson ritgerðir bekksins. níu á línuna bara!!!
posted by 4fl at 2:47 e.h.
föstudagur, maí 13, 2005
föstudagur maður. og frí á mánudaginn. má vera meira af svoleiðis.
góður dagur hjá maurunum i gær. og frekar góður dagur "dómaralega" séð. vorum með tríó á tveimur leikjum. eysteinn fórnaði sér í einn leik og býst ég við að fleiri leikmenn meistaraflokks taki hann sér til fyrirmyndar og dæmi hjá mér næst! ég hef t.d. heyrt að beisi sé hörku reff.
fyrsti leikur west ham í playoffs á laugardaginn. sveinn mætir á svæðið. leikurinn er kl.11.00 - full snemmt fyrir pabba að fá sér öllara. ég verð bara harður og býð upp á kakó.
köttarakvöldið var í gær. vantaði heilmikið af liði. við vorum rétt kynntir - nokkrir fengu að tjá sig og svo voru helstu lögin kynnt, og farið yfir reglurnar á leikjunum. veit ekki með allar ræður kvöldsins. ein var alla veganna ferlega slök. en annars bara mánudagurinn.
hafið það gott um helgina. aju
posted by 4fl at 2:08 e.h.
fimmtudagur, maí 12, 2005
góðann daginn.
takefusa svaraði mér ekki í gær þegar mar bjallaði í hann!! kvekindið 25 ára. tökum snúð á morgun. æ nei, prógrammið maður. sveik það pínu í gær með ljósu gosi á vegamótum. vatn passar bara ekki með nachos.
4 meiddir eftir æfingu í gær. menn svona misánægðir með dómarann í gær. græna liðið soldið að væla og nánast skipaði honum að dæma nokkrum sinnum. kannski smá tapsæri í gangi hérna megin! nei nei Þobbi stóð sig vel.
tapaði annað árið í röð fyrir eysteini í kökukeppni. þ.e. hans kaka var kláruð fyrst í kennarakökugúffinu í gær. ekki sáttur. hélt að súkkulaðikaka væri in the bank.
leyfði mér að kaupa nýja diskinn með weezer, make believe, í gær. held að mar þurfi að hlusta vel á hann. fyrsta lagið samt massa gott.
kennurunum ekki boðið með í hádegisgúff í gær. greinilega ekki í klíkunni. svo var mar bara baktalaður í tengslum við utanfótarskot með vinstri 2003 :-( missti af þættinum um deildina í gær. en svo kemur út blaðaauki með mogganum á morgun. hlýtur að koma mynd af stráknum.
menn ekki að svara sms-um í tenglsum við að reffa í dag. orðinn soldið stressaður. en það hlýtur að reddast.
posted by 4fl at 8:17 f.h.
miðvikudagur, maí 11, 2005
jahá.
dró fólk á the hitshikers guide to the galaxy í gær. bara nokkuð góð. var líka að lúkka með hæ-sí á kantinum.
kökudagur í skólanum í dag. var minntur á það í gær að það væri komið að mér og eysteini að baka! dobblaði ömmu bínu í eina köku. spurning hvernig ég redda hinni.
ógeðiskuldi á æfingu í gær. so er innanbúðarleikur í kvöld. koma svo.
nú er komið að góðum greiða gott fólk. þarf 4 people í létt dómgæslu. nú eða þetta lendir allt á agli. einn leikur er 60 mín. ekki neitt.
köttarakvöld á ölveri á morgun. audda mætir fólk á það.
posted by 4fl at 9:47 f.h.
þriðjudagur, maí 10, 2005
hey.
djöfull var ég lúinn í gærkveldi er hin skemmtilegi þáttur lost startaðist. killer dagur! eftir nánast fulla kennslu skellti maður sér með 6.LÆTI í strætóferð niður á höfn. þar fórum við í þessa líka skemmtilegu sjóferð! engin útbyrðis að þessu sinni - og ég harðneitaði að fá krossfisk sem nýtt bekkjargæludýr. so var það fjórði flokkurinn (að þessu sinni lét 57 gaur sjá sig) auk annars aukaflokks á kantinum! dróg egil úr chilli (that´s right) beint að þjálfa. so var það mfl þar sem geiri bryddaði upp á ferskum sprettæfingum. næstur í að tapa fyrir spídí var haukur. annars nett æfing - mafían að horfa og læti.
loks var bekkjarkvöld. krakkarnir stóðu sig náttúrulega eins og hetjur. á svona kvöldum sér maður greinilega hvað er spunnið í etta lið. þokkalega ánægður með þau. og ótrúlegt hvað það er alltaf vinsælt að taka tískusýningu og dressa sig upp í fötum af hinu kyninu. ósjaldan sem við tókum það hjá nönnu í denn.
eysteinn ekki sáttur við sjöogníu peysuna mína. hún er líka svaðaleg. en ekki fyrir alla.
blaðberar voru ekki ánægðir með snjókomuna kl.06.45 í morgun. það er ekki hægt að bjóða manni upp á þetta 10.maí!
kaupi ekki orðið annað en skonsu með smjeri og osti í álfheimabakarí. hvað er það. já datt þanngað í morgun, og rétt áðan með steina í glæsibæ - EN ekkert óhollt, toppið það. drekk samt orðið full mikið af appelsínusafa. held að það sé ekki nógu gott.
posted by 4fl at 9:48 f.h.
sunnudagur, maí 08, 2005
jebba.
tók nettan bústað um helgina. kíktum á gamla settið á laugarvatn. tók góða sex km við þjóðveginn. tók reyndar keine því allt var lokað. ekki nógu spes.
skjár 1 skelfilegur í sigluvoginum. er ekki sáttur með það. veit ekki hvað er til ráða. mágurinn átti að vera búinn að kára söluna en greinilega ekki.
annars sjóferð og bekkjarkvöld hjá bekknum á morgun. allt að gerast.
okkur spáð 7.sæti á fótbolti.net - kíkið á það og viðtalið við geira.
aju
posted by 4fl at 3:03 e.h.
|