föstudagur, desember 17, 2004
sæl.
þokkalega ekki að standa mig. og meir að segja búið að
auglýsa kallinn á fótbolti.net!
já eysteinn var í hinni hliðinni. næ reyndar ekki að hyperlinka
á síðuna. geri það strax og ég get. það er soldið verið að bauna á mann.
annars er ég allur að róast. þetta er búið að vera hell week ársins.
of mikið að gerast. meir að segja á minn mælikvarða.
alla veganna,
mamma fimmtug í gær. hvað ætliði að gera í því! fórum á hlaðborð í perlunni
og át ég svona 7 skammta af öllu! hitt fólkið í partýinu var aðeins pedna!
en massa nett.
maggi og guðbjörg eru í ölpunum. örugglega bara leiðinlegt hjá þeim!
öss. ég sem ætlaði að vera með þeim. á etta bara inni einhvern tímann.
baldur útskrifuð lögga í dag. þokkalegur. byrjar að bösta fólk 3.jan.
mist útskrifuð úr fá. byrjar í kennó í sept!
spennandi hvað mæta margir á mfl æfingu á morgun! það mættu 10 á síðustu
æfingu. metnaðurinn að fara með fólk! freyr röflaði bara smá. svo var eysteinn með
ekvað væl. "alltaf tvöfaldur sóli uhu uhu"! verð að passa mig á morgun.
fröken halldóra frekar leiðinleg við mig þessa daganna. og það skánar ekki í bráð.
veislumatur upp á hvern dag. spurning um að finna nýja vigt!
posted by 4fl at 11:42 e.h.
mánudagur, desember 13, 2004
hey.
hvernig var helgin.
jú svona sæmileg. tókum upp slatta til að nota í þjálfara
vídeóið, sem frumsýnt verður á miðvikudaginn. bjöggi tekur
alnigher í að klippa etta kaffi. spurning svo hvort ég læri ekki að
klippa onceandforall.
annars fór helgin í fótboltagláp. jú, náði svo að kaupa tvær jólagjafir.
verð að fara setja kraft í það.
bond traustur í gær.
dalton samt svona lala.
fæ engan til að fara á polar express með mér. né
á saw. jújú þetta eru frekar ólíkar myndir. sjáum til.
eysteinn er að missa sig af stressi við leikritið okkar.
generalprufa á miðvikudag. spennó.
posted by 4fl at 1:21 e.h.
|