fimmtudagur, febrúar 19, 2004
heyja.
jæja. 25 er soldið nett tala! kvarter of a sentjurí!
allt að gerast. fékk kókópuffs í rúmið. hvernig er hægt að
toppa það!
so var surprise afmælisveisla niður í þrótti í gær. tókst ekkert
smá vel. steini var að draga mig á einhvern fund. audda kveikti ég
ekkert enda fattarinn ekkert of góður hjá mér! hansi kláraði reyndar
alla kökuna! en etta var magnað.
mist klikkar ekki á þróttarasíðunni. veit samt ekki með myndina!
annars erum við bara á leiðinni út á flugvöll. ekki leiðinlegt að chilla út á leifsstöð.
kaupa nokkra diska. vax og sona!!
en hafið það gott.
posted by 4fl at 8:59 f.h.
miðvikudagur, febrúar 18, 2004
heyja.
hvað er að frétta með bolina hans eysteins. það er
bara tískusýning upp í langholtsskóla á hverjum degi.
þetta er annars jákvætt. svarta peysan með rauðu röndunum
var orðin ansi þreytt. annars gerir hann lítið annað en að dobbla mig á subway.
hata það svo sem ekki!
styttist í fæðingarorlofið hans. rugl er það. bara chill í einn og hálfan mánuð.
leikritið hjá óskari í gær. bófahasar á brodway. alger snilld. ég skemmti mér alla veganna
konunglega. stoltur af brósa. enn lausir miðar!
svakalegt þorrablót á laugardaginn. gleymdi að commenta á það.
hansi nettur með nýja dansinn sinn; "háar hnélyftur"! annars slepptu
sumir sér víst eins og þeim er einum lagið. við komum á óvart og vorum
róleg!
london á morgun takk fyrir. guðrún að fara þanngað í fyrsta skipti.
ég tek bara venslupakkann á etta. fyrsti staðurinn sem við heimsækjum
verður hugsanlega nike town! svo verður ekki leiðinlegt að detta á chealsea -
arsenal með lögfræðingafeðgunum. ó já.
posted by 4fl at 12:21 e.h.
mánudagur, febrúar 16, 2004
jájá.
eftir að hafa eldað lasagna fyrir pakkið í gær (líklegt)
þá var veisla á sýn. fyrst real - valencia, so all star leikurinn.
gott víti sem real fékk. díses. og so sáum við nákvæmlega 2 mín
af körfunni áður en mar rotaðist. kom skemmtilega á óvart!
hjalli ammæli í dag. til lukku. orðinn sextán. það þýðir bara konfekt upp í gymi.
allposters.com að koma sterkt inn! búinn að fá 3 stykki og fleiri á leiðinni.
er veikur - þarf að leita mér aðstoðar! so þarf mar að fara að kíkja á amazon!
annars bara stemmari. steini kom á óvart og fékk sér ekki magga d í gær með leikjunum!
ég lét hann ekki dobbla mig! mar fær sér bara ekki magga d punktur.
posted by 4fl at 11:07 f.h.
|