föstudagur, september 17, 2004
heyja.
haldiði að Unnur Ösp aðalleikkona í hárinu hafi ekki
bjallað í kallinn í gær! og boðið öllum fjórða flokknum á
hárið. þokkalegt mar.
njarðvík í kvöld. og svo lokahóf.
koma svo. meira en 2!
eysteinn nýklipptur og fínn! sem og jenni.
fíla etta ekki samt.
hvað ætliði að gera í "all of my love" með zeppelin.
hlusta á það kannski!
posted by 4fl at 9:44 f.h.
miðvikudagur, september 15, 2004
ja hérna.
eysteinn minn, geturu ákveðið þig?
maðurinn er búinn að missa það. hann er búinn að
skipta um áætlunar- og heimavinnuskipulag níu sinnum
síðan skólinn hófst. díses, ég bara næ ekki að halda á við hann.
hann hreinlega fílar að plasta hluti og líma saman. held að hann ætti bara
að fara að kenna fyrsta bekk.
svo heldur hann að hann hafi unnið á síðustu 5 æfingum. sæll bara.
posted by 4fl at 1:09 e.h.
jójó.
lét pabba bara taka sér frí í vinnunni til að mála.
nettur.
svaðalega var liðið mitt, og ég, slakt á æfingu í gær.
töpuðum meir að segja fyrir geira og 3.flokks gaur!
reyndar seigum 3.fl gaur.
náði engum leik í gær. var ekki sáttur. næ örugglega ekki
neinum í kvöld heldur :-(
prodigy að koma á klakann. ó já. djöfull mæti ég í höllinna
að hoppa. hver er með?
posted by 4fl at 9:38 f.h.
þriðjudagur, september 14, 2004
jebba.
foreldradótið er afstaðið. feeling good maður.
tókum bara bakaríið á etta til að verðlauna okkur.
eysteinn svo búinn að blessa sigluvoginn. nett nett.
- heyrst hefur að magga muni koma til með að skila
verkefnadæminu sínu fyrir jólin 2006. það er bara gott
mál.
- heyrst hefur líka að eva og gunni komi til með að halda innflutningspartý
sumarið 2007. (er ég samt ekki að setja of mikla pressu á mig)
allt að gerast. datt á terminal með bo um daginn. nokkrar stjörnur en
samt aðeins of löng fyrir minn smekk. langaði samt að detta í fríhöfnina og
eitthvert út eftir að hafa séð hana. það styttist í vín - og jafnvel london. eða
hvað - var maður ekki að kaupa sér íbúð!
simmi er greinilega ennþá fúll eftir að ég gleymdi afmælinu hans. ekki einu sinni búinn
að smessa mig og segjast vilja koma aftur í þrótt. takefusa samt búinn að því!
jev.
posted by 4fl at 1:25 e.h.
mánudagur, september 13, 2004
jebba.
myndataka áðan hjá mfl. tókum okkur bara vel út
á móti sólu! flott hjá þeim að gera etta núna en ekki í
okt eins og síðast.
er með foreldrafund á morgun í skólanum. læt nú bara eystein
tala! hann skrópaði í fyrra.
kominn með málningu. sveinn ætlar samt að mála einn! eitthvað
princip hjá honum! svo bara "piv it" í lok vikunnar. meistaradeildin
á morgun. koddu með þa. cocu hjá psv gott fólk.
posted by 4fl at 10:21 e.h.
hvað haldiði?
Bloggið er tveggja ára.
toppið það.
nú hlýtur þetta að þýða gúff! fæ mér alla veganna
snúð í kaffinu. og ef ég fæ ekki 15 shout out á kallinn
þá verð ég fúll.
+ fæ lyklana að sigluvogi 5 á eftir.
hvað ætliði að gera í því. kannski koma í heimsókn!
aju
posted by 4fl at 2:27 e.h.
sunnudagur, september 12, 2004
úrvalsdeild baby.
gott að þetta sé bara komið.
já já og baunið bara á tvær mínúturnar mínar. mér er alveg sama.
gottetta palli að pína sig í auka 10 mín. hlaupandi á einari.
fékk bara 3 "til lukku sms" - ekki sáttur.
- annars er maður enn að jafna sig á að jenni og eysteinn hafi skorað! hvað er það? það var svo hópferð á nasa um kvöldið. ja hérna segi ég bara.
nú er bara að standa sig og fá vonandi nr.18 aftur :-)
vika í verkfall.
spennó.
posted by 4fl at 4:43 e.h.
|