föstudagur, maí 12, 2006
yes.
var búinn að hlakka mikið til sjónvarpsgláps í gær. endaði svo að sofna yfir bæði desperate og lost. ótrúlega léleg frammistaða.
var að frétta að ég er ekki í reglunefnd meistaraflokks. Hvað er það? finnst nú að meðlimur mfl ráðs ætti að eiga fast sæti í þessari nefnd. annars lýsi ég nú smá frati á hana ef hún plöggar ekki reglunum í gang fyrir fyrsta leik!!
annars bara stemmning. road trip á eftir. spurning hver sér um fjörið í rútunni. annars gætu sumir nú alveg talað alla leið :-) sjáumst í mýrdal.
aju
posted by 4fl at 9:31 f.h.
fimmtudagur, maí 11, 2006
jó.
prófstemming í langó þessa daganna. las upp stafsetningarpróf áðan með miklum sóma!
ætla að henda fjórða í ljósastaurana á suðurlandsbraut á eftir. bíttaði reyndar á því og vídeóchilli (út af veðrinu sko). þeir voru alveg út að eyrum með etta!
ætla fleiri að hlusta á low c með kallinum í byrjun júní?
samræmdu búin hjá systu. og liðið farið út til eyja eða eitthvað álíka. djöfull fóru allir (nema ég) í kringluna þegar við slúttuðum ´95. annars er mikil pressa að hún toppi 7-7-9-9!
eitthvað nýtt í essu annars?
posted by 4fl at 12:17 e.h.
miðvikudagur, maí 10, 2006
jahá.
ýsa áðan maður! allur pakkinn. kallinn slakur. átti eitt mark. ekver steik rústaði á mér hendinni. töpuðum 1-3. 45 mín! en það þýðir bara ekkert að væla. o nej.
vík um helgina. bara stuð. spurning hvort maður á að henda fjórða flokks pepp pakkanum á liðið. býst samt við að gaurar á borð við mlú og dhilmis verði ekki hrifnir! checkum á essu.
posted by 4fl at 10:24 e.h.
halló.
kallið mig bara the beekiller. tók eina birdsize heima í gær. eftir að hún hafði böggað okkur alla nóttina. fann hana reyndar ekki morgunin eftir, frekar spúkí.
henning og óli þær mættir á klakann. hvorugur með fríhafnar nammi. hvað er það? og já gott fólk, stuðullinn 1/2 á að henning væri meiddur stemmdi!
æfingaleikur við víking í kvöld á suðurlandsbraut. er það ekki bara nett.
supergrass checked.
og bara alveg rólegur á essu veðri. bara líklegt að maður sé í stafsetningunni inni í b23. þið áttuð að sjá mig í skotbolta í morgun.
aju
posted by 4fl at 3:39 e.h.
sunnudagur, maí 07, 2006
JA-há.
náttúrulega djók hvað það var gott veður í dag. má alveg fara að endurtaka sig oftar. og ég gerði líka gottmótt og var með körfuboltamót innanhús upp úr hádegi :-(
duttum í nettann einspilsbolta áðan út í búri. vann reyndar ekki leik, en það var samt stuð. soldið mikið væl í hróðmarssyni, og hallur.. hvar var hallur?
eyddum deginum í eyjum í gær. já, æfingaleikur við ÍBV á ekki nógu spes grasvelli (en grasvöllur þó). töpuðum 3-2, maggi með netta tvennu (ég veit, ótrúlegt). þetta fer svo að smella.
skelltum okkur á manchestar tónleikana í gær. hefðu mátt vera betri. reyndar bjargaði badly drown boy eiginlega málunum undir miðnætti. hin böndin var ég ekki alveg að fíla. annars fór öll orkan í að halda bjarka vakandi!
fékk svo svaðalegt símtal í gær. karma police í beinni frá köben! já funi og eigandi heklu voru staddir á tónleikum með uppáhaldinu. en maður á þetta bara eftir vonandi.
áfram með etta svo.
posted by 4fl at 9:42 e.h.
|