föstudagur, febrúar 24, 2006
jev.
hnausaþykk úlpa komin í hús! dýrasta flík sem ég hef keypt, og ART skórnir þóttu nú dýrir um árið. jamm, ég, balti og qvintin.
skyrtudagurinn var hress í dag. ég missti mig og mætti í sex litaðri skyrtu, en eysteinn bara nettur í einlitri. hentum svo á appdrætti með þvílíkt vel völdum vinningum úr tiger. ánægður með þá búð - reddar manni alltaf með svona.
ingvi (vonandi) gunnarsson fæddist á sunnudaginn. þokkalega ánægður með það. þá þekki ég 5 sem eiga afmæli á þessum líka skemmtilega mánaðardegi. og segi bara til hamingju eva og gunni.
fórnaði fyrri hálfleik í che-bar í gær - var í photoshoot. sjáið það innan skamms.
klukkan er hálf eitt (am) og ég er rétt að byrja að pakka. mæting 6 út í leifsstöð. af hverju er etta alltaf svona? merkilegt. en það er alltaf ljúft að trítla upp stigann og detta á morgunmat, nokkur tímarit og kúlusúkk í nesti. jafnvel einn disk. veit ekki með sjoppustatus í pétursborg, né hvort borgin sé tölvuvædd!
Þannig að ég segi bara takið fjölni strákar. einhver að taka upp idolið! geymið eina bollu fyrir kallinn. og sjáumst á miðvikudaginn.
Aju
posted by 4fl at 12:25 f.h.
miðvikudagur, febrúar 22, 2006
já.
ekki nógu gott hjá mínum liðum í gær! tökum etta í seinni leikjunum. svo önnur umferð í kvöld. lovely.
eymi boðaður í dýnuboltann í kvöld. og að sjálfsögðu mætir hann í útihlaupið á undan!
skyrtudagur í sjöunda bekk á morgun. þarf að ræna einni af óskari til að vinna keppnina.
Gúffi er látinn, 6 ára að aldri. fyrir þá sem ekki þekkja þá var Gúffi naggrís sem ég og hallur tókum að okkur þegar við réðum ríkjum á hofteig og silfurteig. einstaklega flottur naggrís! verður sárt saknað.
tveir dagar í pétursborg. búinn að meila á jón arnór til að fá tips. eins gott að hann komi með einhverja partýstaði fyrir partýljónin sem eru fara út!!
aju
posted by 4fl at 1:55 e.h.
þriðjudagur, febrúar 21, 2006
jeps.
bjó mér til boost í gær. þokkalegt bara. nánast alveg eins og boostið á þúsara niðrí laugum!
meistaradeildin í kvöld. þarf að segja meira? auglýsingin í fréttablaðinu er líka góð - þar sem verið er auglýsa lengjuna - check it out!
duttum á skauta með bekkina í morgun. sem er svo sem ekki frásögum færandi nema hvað við fórum í íshokkí. þvílík snilld er það maður. ég og smalinn misstum okkur náttúrulega og leyfðum krökkunum varla að vera með. náði að bodychecka hann vel einu sinni (hann er líka frekar slakur á skautum - ekki eins og það hafi verið svell á blöndósi). mar enn vanur eftir að hafa átt bauer línuskauta hérna í denn. svikum reyndar lit og fórum upp í egilshöll - fínasta svell þótt það hafi kostað strætóferð.
laters.
posted by 4fl at 5:27 e.h.
mánudagur, febrúar 20, 2006
hey.
ekki eitt orð um leikinn í gær. jesús. nema hvað mar fékk að fara á miðjuna. gerði svo sem lítið af viti þar en damm hvað ég var að fíla mig. átti líka að skora í byrjun - náði mér eiginlega ekki aftur á strik í leiknum!
svona er etta.
og jamm - 27 ára maður. ferlega flott tala. meir að segja flottari en 26. fínn dagur í gær (fyrir utan 17.00-18.30).
var beðinn um að plögga sölu á utanáliggjandi hörðum disk. 300 eitthvað - gíg! alla veganna mikið pláss. á 15 kall. spáið í því.
frí á æfingu í dag - en klárlega pottur. aju
posted by 4fl at 2:18 e.h.
|