laugardagur, desember 24, 2005
hey hó.
tókst að fiffa öllu fyrir kl.18.00
þannig að ...
Gleðileg jól. Hafið það gott.
Ingvi
posted by 4fl at 9:19 e.h.
þriðjudagur, desember 20, 2005
hæ.
aðeins of stutt til jóla! aðeins of mikið stöff eftir að gera. en er það ekki alltaf þannig! þetta reddast allt. vonandi.
haldiði að það hafi ekki bara verið bolti á laugardaginn. já fótboltaæfing. ekki slæmt. reyndar kláruðu ekki þrír leikmenn æfinguna, nefnum engin nöfn. mitt lið vann ekki enda tveimur færri megnið af leiknum. og svo eru menn að monta sig á essum sigri. lélegt. alla veganna ánægður með að hafa sólað eystein upp í sjoppu.
King Kong. Jesús hvað ég er ánægður með þá mynd. ertað grínast hvað hún er nett. alveg sama hvað mynd mar sér næst - hún verður átómatíst slök.
tapaði illa í fimbulfambi áðan. hallur kláraði leikinn í first round! reyndar mætti ég hress með kvikmyndaspilið á kantinum en svo þorði engin í mig.
jólastuttmyndarstress og jólakortastressið að ná hámarki! litlu jólin í dag hjá maurunum. leikrit og svoleiðis. bara stuð.
aju
posted by 4fl at 12:49 f.h.
|