laugardagur, apríl 23, 2005
jó.
gleðilegt sumar ya-all. þokkalega nett veður going on.
tókum meir að segja grasæfingu í gær. ekkert smá nett. elstir rúlluðu mótinu náttúrulega upp. bara bring it on. er svo ekki alveg að nenna í egilshöllina í fyrramálið.
þróttur - valur á þrið. það verður læti!
menn að sérsmíða adidas skó hægri vinstri. eitthvað nýtt kaffi í adidas búðinni í mollinu. veit ekki með leiknismenn í flair skóm í sumar! sjáum til.
mútta og dad í köben. pabbi örugglega ekkert með tuborg í hægri. tek bara nýja rav-inn á meðann. djöfull er það sweet auto. verð bara þunglyndur að setjast undir stýri á golfinum. menn eru orðnir svo þreyttir á farþegasætinu að fólk labbar frekar heim heldur en að biðja um skutl. ferlegt.
gerði gott mót og keypti bara of stór föt á guðrúnu og sóleyju systur í london. reyndar allt nike dót. en kom ekki sterkur út! offa fötin alveg næst.
sahara á morgun með fjórða. sleppur hún ekki alveg. 650 kjadl kl.15.30 ef þið eruð game!
bið annars bara að heilsa ykkur.
posted by 4fl at 7:18 e.h.
þriðjudagur, apríl 19, 2005
já hæ.
er feitt að einoka tölvuna! enda fer hallur bara að msn-ast eins og smástelpa. stemmning í watford. unnum varalið/unglingalið þeirra í dag. það rigndi eins og ljónið. nett að tækla essar púpur. hallur hataði það heldur ekki. ótrúlegt en satt þá endaði haukur í hvítum stullum. það var líka hraunað á hann. annars er þetta í fréttum:
- dúsan mætti í gærkveldið. nær heilum tveimur dögum. - hallur segir að ég sé kominn yfir hundrað þúsund kallinn. það er lygi. - heiðar búinn að kíkja á okkur, samt ekki búinn að chatta nógu mikið við mig. - hilmar er ekki búinn að kaupa einn hlut í ferðinni. toppið það. - hallur vill endilega koma all sérstakri keppni hjá liðinu. leyfi ykkur bara að giska á í hverju á að keppa. hann er kominn með einn keppanda: guffóvits. - menn eru ekki að missa sig í namminu eins og á akureyri. samt er dabbi logi meiddi að koma sterkur inn. - 6 gaurar fara á stanford bridge á morgun. við hinir þurfum annað hvort að druslast á tottenham leik eða horfa á hinn í tv-inu. ég fer bara að versla! - annars líf og fjör. leikur við reading á morgun. svo hjemm á fimmtudag.
slúður heima? komið með ekvað. aju
posted by 4fl at 9:06 e.h.
mánudagur, apríl 18, 2005
news from london:
jebba. svaf í tvo tíma á laug. vorum mættir 5 niður í þrótt. dabbi fékk s í kladdann. svo bara nett flug yfir. góð stemmning í hópnum. nema hvað: - dúsan fékk ekki flugheimild. vesen með the visa! þannig að hann þurfti að rúlla aftur í bæinn. frekar lame. en hann er væntanlegur mánudagskvöld. - hallur fékk ekki töskuna sína eftir flugið. mjög gott. hann var líka mjög hress með það. hann setti svo ólöfu í málið og kviss bamm búmm, hún var komin um kvöldið.
það var svo bara beint í down town london. sem var ekki nógu gott fyrir budduna mína! setti nýtt íslandsmet í greininni "verslun á fyrstu þrem tímum ferðar". guðbjörg tekur þetta bara á sig. hún hvatti mig að eyða bara öllum peningunum mínum! nike town var fyrsti viðkomustaður. náði að losa mig við halla, jenna og co. tók bara sólóið á etta. nenni ekki að telja allt kaffið upp. búnir með tvær æfingar. mitt lið yfirburðar báðar æfingarnar. palli soldið pirraður á fyrri æfingunni. sparkaði mold í mig :-(
eymi og egill að sjá um allt heima. veit ekki með það!
bið að heilsa.
posted by 4fl at 6:27 e.h.
jebba.
gamalt dót:
er að reyna fatta hver hendir alltaf inn ókeyis dv hjá kjadlinum. ætli fólki uppi eigi að fá hann. samt sáttur við slúðrið!
duttum á eldsmiðjuna. var hugrakkur og fékk mér rjómaost á pedsuna. ekkert smá ánægður með það. kokkurinn upp í skóla dýrkar fisk - einmitt plokkfiskur í dag þannig að ég átti pedsuna skilið!
tókum 16 rósenborgarkvekindi á fim. ekki málið. hljóp svo á eystein þannig að hann varð brjálaður. ásgeir búinn að fá aðstoðarfitnessþjálfara!! steini orðinn aðstoðarþjálfari. það er nett. býð hann velkominn með tæklingu á næstu æfingu. hann hlýtur svo að vera betri en geiri í marki!
var til 11 á föstudaginn að plana mán-þrið-mið í langó í næstu viku. missti af bíó. bara góða skemmtun og gangi ykkur vel forfallarkennarar! verður spennó að heyra hvernig fer.
jæja. áfram með etta.
posted by 4fl at 6:09 e.h.
|