laugardagur, apríl 01, 2006
einmitt!
sjómaður. jesú. tröll. utangarðsmaður. bóndi. bófi. ræfill! móses. jólasveinn.
já fólk sparar ekki stóru orðin. en er búinn að panta tíma, róleg!
Já, kláraði leikinn eins og einhver sagði! og er klár í sprettina á morgun. annað en svona helmingur af liðinu sem keppti í gær. ég meina það!
svo reyndi andri steinn ekvað hefna sín fyrir brotið í denn þegar hann var í Fram - þegar kallinn fékk rauða. en nett að fá stig, þótt 3 stig hefðu verið sweet.
fjórir leikir í dag í fjórða. það er rosalegt. en þurfum ekki að dæma einn leik. það er þokkalega nett.
koma svo real. heyrumstum
posted by 4fl at 10:20 f.h.
föstudagur, mars 31, 2006
já.
föstudagur. þessi vika er náttúrulega búinn að líða fáránlega fljótt.
grindavík í kvöld. jamm, kl.19.00 upp í höll. vill sjá menn á staðnum. og ef þið verðið heppin þá tek ég ekvað move í _ a k _ _ r ð _ n _ m!! verð líka hugsanlega búinn að raka af mér köttinn! reyni samt að dobbla steina eina viku í viðbót.
nokkuð sprækur bara. er nánast búinn að mastera sædlænernum. bull hvað þetta er töff tæki.
egill t í endajaxlatöku í dag. pant. mæti alla veganna og tek mynd af kvikindinu. Kiddi afmæli í dag. 17 ára, sem þýðir "skutlaðu mér" eða skutlaðu agli réttara sagt. sá er ekkert að flýta sér að fá prófið. enda með 6 manns í vinnu við að ferja sig.
menn búnir að sjá V? er það ekki möst.
Leikur ársins á morgun. spurning um auka sófa í stofuna! komma Ziddi.
Heyrumst
posted by 4fl at 12:23 e.h.
þriðjudagur, mars 28, 2006
jebba.
ertað grínast hvað þetta var ekki horn maggi! check your bags bara.
hvað er að frétta með colgate brosið á versló gaurnum?
og ertað grínast hvað gulir unnu ósanngjarnt í gær. jesús. 19-2 í færum og 85-15 pósessíon. bara rugl.
gleymdi að minnast á að ég dobblaði eyma að koma á þorlákshöfn. og að egill dobblaði sigga að skutla honum. ég meina við vefjum fólki um fingur okkar! og eymi fer að koma meira inn í flokkinn. ó já.
meistaradeildin í kvöld. hvað ætliði að gera í því?
posted by 4fl at 8:56 f.h.
mánudagur, mars 27, 2006
hey.
helvítis kuldi um helgina. og bara ekkert rok á þorlákshöfn. jesús. 66° dótið kom sér sko handy um helgina. fórnaði mér reyndar á laugardagsnóttina og lánaði sængina mína og notaði sjálfur þynnsta teppi í heimi. vaknaði svona 30 sinnum um nóttina. ekki skemmtilegt.
maggi lét sjá sig í gær. ætlaði að hrauna á hann að vera búinn að vera á landinu í tvo daga án þess að láta vita eða senda sms - en lét það vera. gaman að sjá kjappann.
bekkjarmyndin er komin í hús. kemur bara vel út. alla veganna betur en myndin af 7.NJ 1992 - þá var ég í robinson/woody harrelson nike skónum mínum með pumpunni on the side. bara 3 númerum of stórir. lúkkaði samt.
tók hlaupaæfinguna einn á valbirni í gær. menn mega ráða hvort þeir trúa því. hélt að þetta yrði skemmtilegra prógramm en svo var nú ekki. en við höfum gott af essu.
keypti mér nýja placebo diskinn eftir að sören skipaði mér að fjárfesta í honum. bara frekar góður. var svo að heyra að radiohead sé að spila í köben í maí. alveg spurning um að offa allt og detta!
lost í kvöld. slakur þáttur síðast. hlýtur að koma góður núna!
posted by 4fl at 12:07 e.h.
|