laugardagur, maí 20, 2006
hey.
reykjavíkurmótið búið í fjórða! kláraðist í morgun. sem þýðir í raun bara að íslandsmótið hefst eftir viku! eymi er kominn aftur í "tekurleikinnmeðaningvieráæfingu" pakkann. vorum svo með foreldrabolta í gær. heppnaðist vel nema hvað hallur og dóri vildu ekki vera með í einum leik.
fórum á the da vinci code í gær. slapp svo sem, nema hvað ég held að þeir sem ekki séu búnir að lesa bókina eiga eftir að skemmta sér betur. sá svo úr bond. hún á eftir að gera gott mót.
prófyfirlestur.is að byrja. yes!!!!!
ólafsvík á morgun. eins gott að einhverjir kíki í road trip.
tók góðan bæ í dag með systu. var svaðalegur á brettinu í shöllinni. kk var nettur á einhverjum útitónleikum. smellti mér líka á gnarsl.
ulatowski mættur á klakann. hittum hann í dag. spurning um að kíkja á hann á fáskrúðsfirði í sumar! hvað er það, 15 tíma keyrsla.
áfram.... finland!
posted by 4fl at 6:20 e.h.
fimmtudagur, maí 18, 2006
nei hæ.
hvað er uppi. jú silvía blessunin náttúrulega að syngja í kvöld. og það kallar að sjálfsögðu á fjölmenni og gúff!
úrslitaleikur meistaradeildar evrópu í gær, og hvað haldiði? spá manna rætist - hann var með leik á sama tíma!! tek það samt ekki á mig.
menn að klára prófin hægri vinstri. verð bráðum kominn með fimm manna crew á æfingar.
tókum hauka på mandag! það var ekki leiðinlegt. mörk á 90 og 92. okkar maður náði sér ekki nógu mikið á strik. reyndi að gera eitthvað að viti þarna vinstra megin en lítið gerðist! næsti leikur á sunnudaginn v Víking, Ólafsvík. það er víst skrautlegt að spila þar - bring it on.
vorum í hjólaferð áðan. eysteinn var í því að gera gott mót. sá um viðgerðir og að reka lestina. gekk eitthvað brösulega.
ef það er ekki reitur, skipt í tvö og málið dautt í kvöld þá veit ég ekki bara hvenær.
Rafal að mæta heim á klakann um helgina. verðum að taka hann í gúff.
ég segi bara til hamingju ísland.
posted by 4fl at 3:25 e.h.
|