föstudagur, desember 10, 2004
góðann daginn.
föstudagur maður. hötum það ekki.
erum að æfa leikrit eins og ljónið í skólanum. hef sjaldan
sé betri uppfærslu á þyrnirós! verst bara að ég næ ekki að troða
mér í verkið :-( þorði aldrei að vera með í ms sýningunum. sé smá
eftir því. en það hlýtur einhver að veikjast á sýningardag (ógeðslega leiðinlegur
gaur) og stekk ég þá til! kíktum svo í húsdýragarðinn í gær með krökkunum (ég veit - aldrei lært í þessum skóla). sáum þar guttorm blessaðann. erum við ekkert að tala um að fara að grilla hann? hvernig er það!
anyway.
dróg systu á kaffihús í gær. þar fengum við okkur verstu kökusneið í
evrópu. gleymdi að ég hafði ekki borðað kvöldmat, og því át ég melónuköku
í kvöldmat í gær. en þið?
vissuði að liverpool er komið áfram. vissuru það eysteinn? (mana þig að koma
með comment - færð það bara ekkert aftur í bakið). og við erum að tala um að ég
hefði staðið mig í real-roma leiknum. shit hvað þeir voru ekki að nenna þessu. inn á
með owen takk. og niður í aðra deild með roma.
en hafið það gott um helgina.
sé ykkur í bænum.
posted by 4fl at 3:02 e.h.
miðvikudagur, desember 08, 2004
jebba.
ég meina hver fílar ekki fastafléttur?
gleymdi að minnast á oslóartréarferð á sunnudag í
28 vindstigum. dróg systu og bjarka niður í bæ. jólatréð
var næstum fokið, jólasveinarnir létu ekki sjá sig og einhver hélt
að sóley væri strákur! hún var ekki sátt og lætur örugglega aldrei aftur
á sig viðkomandi prjónahúfu!!
allt að gerast í 6.bekk í langó. brilleruðum á skautum. héldum
uppi stuðinu á diskóteki og föndruðum eins og ljónið!
tók píparann í einkatíma í gymminu í gær. var að fíla mig aðeins of mikið sem
einkaþjálfara, þar sem ég er búinn að vera mánuði lengur en hallur í pleisinu!
hittum ótrúlega fáa! og settum svo met í fjölda mínútna í pottinum; 8 mín!
þurfti að flýta mér í smárabíó til þess að nota ekki boðsmiðann hans eysteins á
selmu heiak! damm - segi ekki meir.
eysteinn fékk skróp á æfingu í gær. og við erum að tala um 0 markmenn á æfingu.
erum einnig að tala um að freyr var að gefa fólki "ollara" hægri vinstri. og fórum aðeins í
reit í 6 mínútur.
meistaradeildin í gangi. koma svo liverpool. hljótum bara að taka etta.
posted by 4fl at 1:08 f.h.
þriðjudagur, desember 07, 2004
jæja þá.
tilkynning til markvarða í mfl: æfing í kvöld kl.18.00!!
það er nú slæmt þegar það mætir bara einn markmaður og
geiri fer í mark. en að hafa einn markmann og bara engan í
hinu markinu er frekar leiðinlegt skal ég segja ykkur.
svo er spurning hvort eysteinn heldur út heila æfingu í kvöld.
fólk er eitthvað að bögga súkkulaðidagatalið mitt. eru að segja að
25.ára karlmaður eigi kannski ekkert að vera með svoleiðis! hlusta ekki
á etta. og gef guðrúnu ekki einn mola!
veit ekki með hringinn hans óskars!
guðrún, er hægt að leggja lengra út á götu? (og hvað ætliði að gera
í essum kagga?)
ennfremur hvað ætliði að gera í kúrekalúkkinu? svo eru menn að fíla auglýsinguna hjá
sveppa, audda og pétri. öss.
tók 9 rétta um helgina í getraunum. strákurinn seigur. kominn
á toppinn í þessum leik. spennandi að sjá hver verður næst.
posted by 4fl at 10:51 f.h.
sunnudagur, desember 05, 2004
heyp.
hvað segiði. eruði búin að sjá tippið mitt (góða spurningin)!
haldiði að kallinn hafi ekki náð 9 réttum
í tippinu á laug. þokkalegur. fór bara létt með etta.
annars bara stemmning.
er að setja íslandsmet í fjölda æfingaleikja á einni helgi.
fimm kvekindi. öss. og með aðstoðarpúpurnar vælandi
út af prófum.
er að sofna yfir ali. trúi ekki að ég sé að horfa á hana aftur.
sofnaði feitt á henni í bíó. ´
kveikt á oslóartrénu á morgun. hefð að kíkja á það.
detta á kakó og svona. lýsi svo eftir squash félaga á þorlák.
gamli félaginn verður vant við látinn að þessu sinni.
posted by 4fl at 1:24 f.h.
|