mánudagur, september 27, 2004
jebba.
kallinn kominn með kaffikönnu og ristavél. þetta er allt
að koma. get núna hellt upp á nett "keffe".
survævor byrjað aftur. meir að segja ég viðurkenni að þetta er
orði' þunnt. jeff er farinn að pirra mig.
duttum á selfoss um helgina með fimmta. það var ekki sála í bænum.
allir á scooter með guffa! nett ferð. vann samt ekki í sing star. ekki
nógu góður í þeim leik :-(
maggi og guðbjörg á faraldsfæti. eða farandsfæti. never mind.
voru í ljubljana í slóveníu. eða slóvakíu. never mind. so í bolognia
og alles. uss. er þetta lið ekki í skóla?
og himmi og rakel á spáni. eða portúgal. djöfull fylgist ég vel með!
himmi líka afmæli í gær. sem og bjarki sig. maggi er í slæmum ef hann
klikkaði á því! og afmælisbarn dagsins; vignir þór. full gamall fyrir minn smekk.
koma svo samninganefndir!
posted by 4fl at 1:57 e.h.
|