laugardagur, janúar 03, 2004
sæl og bless.
erum við ekki að grínast með:
- hvað mér er illt í bakinu. ég er gersamlega í hinum svokallaða pakka.
- hvað maturinn á vegamótum er í miklu budli (góður).
- hvað king of queens er mikil haha.
- að við séum að fara að lyfta í gym 80 :- ( í næstu viku.
- hvað nýja dagbókin mín er nett.
- hvað rafal var lélegur í marki á æfingu áðan.
- að það sé æfingaleikur hjá 4.fl upp á skaga á morgun.
- hvað bo röflaði lítið í kvöld.
posted by 4fl at 12:16 f.h.
föstudagur, janúar 02, 2004
hey.
stuð. er að telja mætingu hjá 100 maurum í okt-des.
er að verða bilaður. af hverju er eymundur ekki að gera etta?
eru menn búnir að sjá identity. þokkaleg mar. þurfti að fylgja
fólki heim í gær eftir hana! veit so ekki með legally blonde 2 :- (
ekki sáttur við magnús. west side crewið ekvað að þenja sig!
Burritos á súfistanum. jedenu. toppar það fátt.
idol í kvöld. og essi súpa. allt að gerast.
búinn að missa af matrix í bíó. ekki sáttur. bíð nú bara eftir
crusie í samúræ myndinni. koddu með það.
ingvi v harald átti að vera í dag í húsum tbr - en óvænt veikindi hömluðu
halla að keppa. í annað sinn á skömmum tíma sem þetta gerist.
soldið spúkí!!
posted by 4fl at 4:07 e.h.
heyja.
gleðilegt ár. 2004! hvað ætliði að gera í þí.
bannað að böggast á shout outinu. allt jákvætt á þessari
síðu. ok sör.
ungir v gamlir í gær. rúlluðum náttúrulega yfir púpurnar, sem komu
ekki með kippur. ekki sáttur við hjálmar og co. var samt bara rólegur.
fékk dæmt á mig rögl víti. en etta var nett.
bjöggi og bjarki búnir að vera á æfingu hjá real og fara svo á leik á
laugardaginn. ekki slæmt. held samt að þróttur - ía í 4.flokk á
laugardaginn toppi það! en - hérna - getið þið séð vídeó sem bjöggi
sendi - (ef þið eruð með skítsæmilega tölvu).
ég skrópaði í félagsvíst á miðvikudag :- ( tek það á mig.
hlustaði frekar á smá tuð og horfði á basic (2 stjörnur).
annars nett gamlárskvöld, fyrir utan skaupið. djöfull var það
slakt. paplo eitthvað var svo hundrað sinnum fyndari en það.
halli var með game - gott stuð þar. eva var með game - gott stuð
þar (fyrir utan lætin í möggu (sem var með rauðvín í annarri og freyðvín
í hinni allt kvöldið). so var fólk að bögga leðurarmbandið mitt.
fammelían var hress. pabbi var eitthvað að lýsa fyrir mér 50 metra bar í
höllinni þegar hann var tvítugur! ekki hatað það. annars sá mar um að bomba mega
fjölskyldupakkanum okkar. fer samt að segja það gott.
nýársheit:
- halda sixpacknum við. fitness ingvi mættur aftur.
- fleiri æfingaleikir. að sjálfsögðu.
- vera stundvísari (það meinaru guðrún?)
- vera rólegri (hvað meiniði?)
posted by 4fl at 12:32 f.h.
þriðjudagur, desember 30, 2003
heyja.
hvað er að frétta. róum okkur á veðrinu. það
voru bara mjög fáir fastir í gær. þar á meðal magnús!
ég lét bara hvíta kaggann eiga sig! enda hefði hann verið
líklegur í vesen. svo vorum við meir að segja að spá í að taka
dagsferð á sauðakrók - djöfull hefði það endað vel.
er búinn að eiga svona lala spilajól. er ekki búinn að ná mér á strik
í trivial - en vann samt mrs and mr spilið með yfirburðum.
róum okkur á Lord of the Ring. hún er gersamlega í bullinu. ég veit að fólk
veit það! en hún er í bullinu! duttum í gær - magga sá bíóferðina. vorum í sal 7,
á öðrum bekk - lengst á kantinum :- ) nei segi svona. etta var nett.
öll jólamótin komin. djöfulsins törn. 8 lið í hvorum flokk. fékk næstum nóg!
so búið að bjóða kallinum vinnu í knattspyrnuskóla arnórs. er þokkalega proud með
það - enda vantaði mér eitthvað að gera frá 6.00 fram til 8.00! sáttur.
flugeldasala þróttar mætt á svæðið. býst við að björn muni halda sölunni upp
enn eitt árið. mun ekki vakta þrótt þessi áramót :- ( það verður að hafa það.
helvíti góð svo heimahlaupin hans geira. taka bara engan tíma! styttist í ungir v gamlir.
býst við að mar sé gersamlega kominn í gamla. og ég ætla ekki að vera með neitt trash
talk þetta árið - ætla að vinna kippu takk fyrir.
"inga" funadóttir mætti á svæðið í gær, 29.desember. til hamingju sigga og funi.
þetta er snilld. og bjarki og bjöggi ekvað að ljúga að mér að þeir séu að fara að horfa
á real madrid á æfingu. þarf að fá þetta á mynd takk fyrir.
jæja. hafið það öllsömul gott yfir áramótin. og notið hlífðargleraugu!
posted by 4fl at 3:17 e.h.
|