laugardagur, júní 25, 2005
hæ.
skemmtileg súld í höfuðborginni. setti sinn svip á æfingu áðan. menn samt þokkalega ready í grindavík á morgun. bara ekkert krítískur 6 stiga leikur!
og á bara alveg að svelta okkur á sýn? geiri má nú alveg fara koma á svona stykki! uss, langt síðan mar fékk svona garg frá lumma.
býst líka við að hanga inni í dag og kíkja á þjóðverjana flengja brassana í preddunum sínum.
annars er kallinn kominn með ibook í láni og er feitt að henda inn heitustu diskunum inn á mini-inn. mar þarf svei mér þá að fara að lengja hlaupinn.
eymi verður með rúmfatalagerstjald á hróa. það getur bara ekki haldið. spurning á hvaða tónleikum ég á að panta símtal heim.
posted by 4fl at 2:37 e.h.
föstudagur, júní 24, 2005
heyja.
meiriháttar að ná ekki stigi í gær. meiriháttar að fá að leggja sitt af mörkum!! átti það reyndar ekkert skilið eftir að asnast til að mæta of seint út í kr. djöfuls auli maður.
væri leiðinlegt að sjá þessa á sviði 2.júlí!
eða þessa!
djöfull er ég að stela af öðrum bloggum mar.
anyway. helgin að koma. reyndar kemst lítið annað að en að vinna grindavík á sunnudaginn.
eymi að fara á kelduna á morgun. leyfi honum að fá frí á æfingu í dag. allt of linur við essa aðstoðarmenn mína. vonum bara að kallinn taki ekki BCM á etta adna úti.
laters.
posted by 4fl at 10:25 f.h.
fimmtudagur, júní 23, 2005
heyja.
sagan segir að kallinn sé einn af 10 stigalægstu gaurunum á draumadeildin.is - það er ferlega lame.
við systkinin breyttum til og duttum á tælenskan stað í gær. bantai eða ekvað. og bara þokkalega góður. alveg í lagi að pása pizza hut aðeins! ösnuðumst svo til að taka blade 3. þrátt fyrir að vera tryggur snipes fan þá var þetta eiginlega ekki nógu gott.
gylfi einars að detta í knattspyrnuskóla þróttar.
svo kr - þróttur í kvöld í frostaskjóli. þið látið nú sjá ykkur þar! aju
posted by 4fl at 10:52 f.h.
miðvikudagur, júní 22, 2005
jes.
óþolandi hvað það er ekki hægt að tala um tónlist við neinn í mfl. gersamlega allir eru anti-musicmenn. nei eysteinn og palli; sálin er ekki komin með nýjan disk!
Trouble with dreams is you never know When to hold on and when to let go
rugl gott lag.
líka svaðalegt hvað palli kemur alltaf í lummó bolum á æfingar. ég meina, við erum í úrvalsdeild! og fyrst við erum að tala um æfingadót. beisi; buxurnar yfir sokkana og stundum takkaskóna. það er off! ég fékk ekki einu sinni að vera í þrönga nike bringuhársbolnum mínum áðan :-( æj, hættur að röfla.
posted by 4fl at 7:01 e.h.
þriðjudagur, júní 21, 2005
Heyja.
er bara ekki búinn að vera í stuði í viku! my bad. en margt búið að gerast:
nýtt matarprógramm! jújú, veit ekki númer hvað. en skal standa mig this time! píndi meir að segja í mig hafragraut um daginn. hann er vægast sagt bad.
a liðið í fjórða vann loksins leik í síðustu viku. það var orðið heitt undir þjálfaranum. ég segi að nýji ipal hátalarinn minn frá epal hafi gert trixið fyrir leik. bauð upp á pepptónlist fyrir leik eins og í denn. spurning hvort ég sé enn í straffi hjá fjalla í mfl!
mútta og systa komu frá dk í fyrradag. þokkalega ánægðar með ferðina. spurning um að geyma skotland næst og detta til billund eða lökken! annars er ég mest spenntur fyrir pokabuxunum sem allir keyptu (eða réttara sagt allAR keyptu) - þær eru rosalegar.
unnum íbv í síðustu viku - ekkert kærkominn sigur neitt! var hin altalaði 17 maður. það var ekki spes. fyrsta n.i.s. á þessu seasoni. og skelfilega fúll út í egil að láta mig dreifa miðum á maurana fyrir leik. fékk bara ekkert salt í sárið þarna rétt fyrir leik :-(
er orðinn vel tanaður - og lítið um línur! ofnæmið er svo nett búið að vera pirra mig sem og fleiri. splæsti á mig einhverjum töflum sem vonandi virka. ekki nógu töff að hnerra 7 sinnum þegar maður er með boltann á æfingum.
haldiði að kallinn hafi ekki slegið blettinn hjá sér. já - liðið fyrir ofan okkur var í útlöndum og treyst okkur fyrir að halda garðinum flottum. ég reyndi að gera línur eins og á völlunum en það mistókst ekvað.
17.júní var frekar nettur. sól og allt. hundar með derhúfur út um allan bæ. það var frekar fyndið. rúllaði guðrúnu upp í "hæ" leiknum. en fékk ekki sleikjó né neitt.
hvað er með nýja oreo kexið? það er nógu óhollt fyrir í sinni upprunalegu mynd. en svo er komið ekvað nýtt dæmi þar sem þrefalt lag af súkkulaði er troðið yfir. ég meina þetta er að fara með mig. suddalega gott kaffi.
datt í Þórsmörk í fyrsta skiptið ever um helgina. var ekki sama um allar árnar á tímabili. en það voru vanir menn undir stýri. maggi var reyndar ekvað stressaður en það reddaðist. held að hallur hafi klárað erfiðustu sprænurnar fyrir hann. en dam hvað er fallegt þarna.
datt á batmann 13. veit ekki með hana. leiddist næstum á tímabili, sem er skrýtið því ég er alveg týpan sem fílar svona myndir. war of the world næst. öss hvað ég held að hún verði nett.
Þróttur - Haukar í gær. hvað skal segja. algjörir aular að klára ekki dæmið í venjulegum leiktíma. menn engan veginn á hundrað. en svona er etta. úr í 32 liða frekar dapurt. kallinn ekki á lista yfir fyrstu sex mennina til að taka spyrnu :-( fann þessa svo!
duttum í golf eftir leikinn. þar sem ég splæsti fyrir egil á stylnum þá lét ég hann vera kylfubera. ég átti það líka alveg skilið. ég og eymi náðum okkur samt engan veginn á strik og töpuðum naumlega fyrir kidda og rabba. en held að hitinn hafi farið niður fyrir frostmark!
jamm jamm. farinn að kaupa eels og fleiri diska. aju
posted by 4fl at 8:53 f.h.
|