fimmtudagur, desember 15, 2005
Jó.
Gríðarleg spenna var í langó í gær en þá var hin árlegi rauði dagur kennara. þ.e. allir eiga að mæta í rauðum fötum. ég hef verið sigursæll undanfarin ár og yfirleitt rúllað yfir eystein. en nú ætlaði hann aldeilis að vinna, og mætti líka í massa dressi. en á endanum vann bjöggi með 12 atkvæðum - og eysteinn endaði með 10 atkvæði. Hann var ekki sáttur, sérstaklega þar sem ég kaus bjögga. tek það á mig.
elli, koddu bara aftur maður.
Bæjarferð með maurunum í dag. þokkalega ljúft. Te og Kaffi tók á móti okkur. og ég kenndi crewinu að vera vanur niðrí bæ.
Guðrún búin í prófum. bara ekkert sátt við það!
Og svo jólavídeó á morgun. búinn að breyta stofunni minni í lítið kvikmyndahús. spurning hvaða mynd eysteinn velur.
aju
posted by 4fl at 4:19 e.h.
miðvikudagur, desember 14, 2005
jebba.
datt í hlynsalina í gær. er hægt að skreyta eina blokk meira? ég bara spyr. mæli með að fólk fái eystein til að hjálpa sér með ljósin í ár!
kvikmyndaspilið komið í hús. já - prófaði það svo aðeins í dag með fjölmiðlavalinu mínu. lofar góðu. magnús strax farinn að afsaka sig. en hann þarf að fara taka sig á - er undir í stigatöflunni eins og er.
þarf nánast að skríða um íbúðina eftir hlaup síðustu daga. eins gott að hún er tiny.
náði að pranga út innanhústíma í höllinni fyrir fjórða. alltaf gaman í innanhúsbolta. man í denn með lumma þegar stúkuhlaupin voru í tísku. good times maður. og tómas ingi í snuddunum.
tónleikarnir voru nettir á sunnudaginn. vorum samt ekki alveg nógu ánægðir með sætin okkar - þannig að við svindluðum okkur aðeins. bjössi þorði samt ekki að spyrja Björk hvort hann mætti sitja hjá henni. er annars búinn að brenna þrjá diska með félaganum. come and get it.
hver er jólagjöfin í ár?? - levi´s ... get varla sagt buxur: enginn díll hjá óla bödda í ár :-( - húfa! - walk the line + little trip! - skissubók! - nett vax! - góð dvd mynd!
posted by 4fl at 12:58 f.h.
sunnudagur, desember 11, 2005
Heyja.
Duttum á the ice harvest í gær. náðum einum hring í smáralindinni á undan. ótrúlegt en satt þá sáum við ekki Eystein og co. að versla!
ég og pabbi töpuðum fyrir guðrúnu, mömmu og sóley í trivial í gær. það er skandall. pabbi tekur það algjörlega á sig. og svo þurfti ekki að fara upp á topp og svara 4/6 af spjaldinu. hvað er það.
kjappinn kominn með miða á Antony and the Johnsons í kveld. hvað ætliði að gera í því.
posted by 4fl at 10:22 f.h.
|