laugardagur, febrúar 19, 2005
26 :-)
posted by 4fl at 8:44 f.h.
föstudagur, febrúar 18, 2005
15% :-(
posted by 4fl at 6:59 e.h.
hey hó.
last day as a tventyfiveyearold. spurning um snúð í kaffinu í tilefni dagsins. já svona rétt fyrir fitumælinguna!! endilega látið sjá ykkur. ég verð þessi með byssurnar í nýja svarta ermalausa nike bolnum.
er lélegt að gera gift list? var samt hvattur til þess! hann er ekkert langur: dvd - cd´s - húfa - dót í búið - plakat. eitt af þessu er blöff. megið giska.
annars stemmari. "joey kvöld" í kvöld. eflaust einhverjir sem bögga það. en það er megavika í kvöld og læti.
mikið gúff á döfinni: 1. matur í bláa lóninu (já það er vel hugsað um mann). 2. matur á stælnum (sem freyr eða palli splæsir á ef ég vinn fitudótið). 3. matur á argentínu (ef ég vinn firmakeppnina). 4.matur hjá mömmu (klikkar seint).
p.s. eru litirnir að gera sig?
posted by 4fl at 1:45 e.h.
fimmtudagur, febrúar 17, 2005
jamm jamm.
hjálmar afmæli í gær. hefur eflaust fengið sér a pint í tilefni dagsins. svo eru bara tveir dagar í 26. það verður hreinlega að segjast að það er ekki nógu töff tala! ó well. samt ekki eins slæmt og 29! eða hvað G I?
veðrið ferlega óákveðið þessa daganna. snór, rigning, bylur eða chillað. ekki nógu sniðugt. og í dag voru snjóboltarnir sérstaklega deadly! engin meiðsli enn samt.
posted by 4fl at 12:31 e.h.
þriðjudagur, febrúar 15, 2005
heyja.
tókum bara bíó-ið á etta í gær. million dollar baby. þrusugóð. hillary búinn að leika í tveimur myndum eða eitthvað álíka, kominn með einn óskar og fær annan for sure! clint líka ekkert svalur.
leyfði krökkunum að hlusta á afgan og rómeó og júlía með bubba. allir orðnir fans! svo er það rolling stones í dag. eruði að grínast með "gimme shelter". djöfull er það töff lag.
posted by 4fl at 9:41 f.h.
mánudagur, febrúar 14, 2005
fékk mail í morgun:
"Hallo Ingvi. Today I had grilled frog for lunch and in the afternoon I was at a shooting range firing an AK-47 Kalashnikov. What have you been doing? Soren H"
varð soldið leiður þar sem ég mitt plan er þjálfun 6.30-7.30. kennsla 8.00-14.00. þjálfun 15.00-17.30. lyfingar 18.00-19.30. er samt ekkert spenntur fyrir víetnam. kíki þanngað bara seinna.
valentínusardagurinn í dag. soldið pressa á kallinum að vera rómó. hlýt að plögga ekvað. hringi bara í svein!!
annars bara nokkuð góður. það er samt verið að rífa upp gamalt sár á síðunni hans hjálmars. algjör óþarfi.
posted by 4fl at 9:38 f.h.
sunnudagur, febrúar 13, 2005
jebba.
duttum í netta sumarbústaðarferð í gær. himmi og rakel plögguðu bústað og við drifum okkur á stað. spóluðum okkur í gegnum nokkra skafla og svona. ekkert mál. fékk ekki grilla frekar en fyrri daginn. alltaf er mér hent í uppvaskið! veit ekki með það. annars var kjetið brilliant. og potturinn enn betri.
ekki nógu spes leikirnir í dag. menn ansi morknir ekvað. sérstaklega dómararnir slash þjálfararnir. held að það verði æfingaleikjalaushelgi næst. nema að eymi og egill mótmæla mikið.
rise 05.55 í fyrramálið. já þetta kaffi er að hefjast. ekkert væl á þessum bæ. bara harkann sex!
posted by 4fl at 7:46 e.h.
Heyja.
vissuð þið að skinkuhorn kostar 170kr hjá bakaranum á hjólinu. hvaða rip off er það? andskotinn.
Já menn ætluðu ekki að kaupa þennan æfingaleik við selfoss í gær. leiknisvöllur var hvítur og með köggla á kantinum. það var hvassara en á stórhöfða. og pottþétt mínus ekvað. en við mörðum etta 3-2. skemmst frá því að segja að kallinn var í miðverði og gerði lítið flókið. svo sem lítið að marka þennan leik en staðan er heldur skemmtilegri en staðan which we don´t talk about.
6 dagar í fitumælingu. já það er veðmál í gangi. ég, palli og freyr. já ég veit hvað þið segið; hvernig get ég tapað! en ég ætla ekki að vera með stór orð fyrr en eftir mælingu. freyr er orðinn ansi fit. palli er... já bara í snickersinu. en freyr fékk sér víst súkkulaðiköku á árshátíð í gær þannig að. ég byrja svo á sérstöku prógrammi á morgun. en mælingin verður í beinni á sýn.
posted by 4fl at 11:43 f.h.
|