fimmtudagur, desember 02, 2004
helló.
þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég er sáttur!!
kíkið aftur í kvöld og sjáið 13 rétta.
veit ekki með myndina samt.
duttum á ógeðis hákarlamyndina í gær. ég var samt furðu
hugrakkur. pant ekki lenda í svona löguðu.
smá snjór úti, sem þýðir væntanlega svell á gervigrasinu
í kvöld. sem þýður tækl. sem þýðir að sumir fara að væla.
sem þýðir.. æi komið gott.
posted by 4fl at 2:26 e.h.
miðvikudagur, desember 01, 2004
jó.
óli tryggva keypti bókina "ingvi bakvörður" í gær
fyrir æfingu og las hana. díses hvað ég gaf oft á hann
á æfingu í gær (hann var sem sé í hinu liðinu - en það gat
misskilist ef menn sáu leikinn í gær) - þetta var orðið þokkalega vandræðalegt
og bara plain ógeðslega lélegt. en svona er etta. það er sem betur fer
nóv.
gerði 4 af leiðinlegustu hlutum sem hægt er að gera, í gær!
- vaskaði upp.
- skóf bílinn.
- fór yfir enskupróf.
- spilaði hægri bakvörð.
eyma tókst svo að brjóta einn rim (ingvi íslenskukennari takk
fyrir) - hann var sem sé eitthvað að djöflast í rimlunum í langholtsskóla
í gær - vorum í dýnubolta með 4.fl - og viðurinn bara höndlaði etta ekki.
og nú er ég í slæmum!
doddi, a.k.a. þorgrímur þráinsson kom áðan og var með bókakynningu!
þar sem ég er soddan spaði og þekki hann ágætlega þá var eysteinn súr
og með leiðindi - trúði ekki að kallinn hefði sagt; "sjáumst í ræktinni" við strákinn.
1.des í dag. þokkalegt bara. nett jólastemmning í skólanum.
þarf svo að mæta með vöðvana og færa píanó hjá tengdó. að sjálfsögðu
fyrst hringt í buffið (mig). tek etta með vinstri.
posted by 4fl at 2:14 e.h.
þriðjudagur, nóvember 30, 2004
fann þetta svo á netinu.
vonandi getið þið séð björgvin ívar
19 ára að syngja í söngvakeppni framhaldsskóla.
skora hér með á eystein að redda myndbandinu af honum
í blönduvision ´94. koma svooooo.
posted by 4fl at 3:31 e.h.
heil og sæl.
eysteinn soldið að bögga sein skrif. tek etta á mig.
erfið helgi! fyrsti í aðventu og svona. 3 æfingaleikir.
alla veganna,
ísl.mótið innanhús um helgina. einkar skemmtilegt eins
og vanalega! komumst áfram í 8 liða úrslit þar sem við
töpuðum fyrir kr. varamannabekkurinn var hress. tyson
var hress! og simmi var...já kom simmi inná? ég var bara í
ronaldinho töktunum eins og fyrri daginn.
jólaskrautið lítur vel út í sigluvoginum! bárujárnsaðventukransinn
er að gera gott mót. svo er mútta að sjálfsögðu búinn að kaupa
dagatalakerti og súkkulaðidagatali. snellingur.
ÉG MEINA, BJÖSSI OG HALLUR, HVAÐ ÆTLIÐI AÐ
GERA Í ESSU MARKI HJÁ MELLOR? 2-1 BABYSUGAR.
ekki einu sinni reyna að segja mér að 70 gaurarnir hafi skeint
hvor öðrum. sýndist sjá það á trailernum á best of 70mín 3.
er það ekki bara tindurinn á essum pakka. jedde nu.
það er orðið officielt:
Ingvi Sveinsson.
Guðrún Inga Tómasdóttir.
Siguvogur 5.
jólakortin hingað takk!
bíllinn minn er bilaður aftur. þess í stað þarf ég að aka
um á þessu hræi :-( get ekki látið uppi nafn eigandans!
posted by 4fl at 2:59 e.h.
|