miðvikudagur, apríl 09, 2008
jó.
ja hérna hvað það var ljúft að liverpool tók leikinn í gær. víti eða ekki víti - við erum komnir í undanúrslit. óskar skellti á mig og ég sleppti nú að heyra í benna frænda.
djöfulsans snjór. er enn í sjokki eftir að hafa séð hann í morgun. var ekki komið sumar?
b.sig með tónleika á morgun á organ. eruði ekki memm á þá!
posted by 4fl at 9:37 f.h.
þriðjudagur, apríl 08, 2008
jev.
móralskur í mfl síðasta laug. missti reyndar af laser tag sem gamlir unnu víst örugglega. en ótrúlegt en satt þá lét ég sjá mig niður í miðbæ! kíktum á simma frænda þeyta skífum í 25 ára afmæli bigga og baldurs. þvílíkt stuð þar og ekki minna stuð á ónefndum stað einhvers staðar fyrir aftan lækjagötuna. enduðum svo audda á vöfflunni.
asnaðist í bringusund fyrir helgi og eiginlega rústaði á mér hnénu. það vita víst allir að þeir sem hafa átt í veseni með hnén á maður syndir ekki bringusund. það er reyndar almennt ekki nógu töff að synda bringusund - verð hér með að fara að massa skriðsundið, fá mér froskalappir og svoleiðis.
liverpool í kvöld. koma svo. segi ekki meir.
posted by 4fl at 2:43 e.h.
|