fimmtudagur, febrúar 13, 2003
HEJA.
menn
bara hressir. fram á morgun. það verður nett. verðum að taka hann og fara í úrslitaleikinn á mánudaginn.
var næstum búinn að klessa á magga í gær. spáið í því. munaði ekki miklu á engjateignum. var samt alltaf með etta under control, með símann, ekkert belti og fullan bíl af maurum á kantinum. gott ástralía v england. frekar dapurt. er að standa mig í æfingaleikjunum eins og fyrri daginn. bara með 3 leiki planaða um helgina og 2 strax eftir helgi. er samt mest spenntur fyrir leiknum næsta miðvikudag - og þá er kallinn líka 24.ára. Er ekki flottasta að vera tuttuguogfjagra. Mér finnst það flair tala.
hitti gulla frænda í vikunni og kom hann ekki með tobleron frá hollandi né neitt dót frá simma. Simmi, er alls ekki sáttur. hvað á þetta að þýða. er heldur ekki búinn að fá boð í partýið hjá stærsta frænda. er heldur ekki sáttur með það.
getraunaleikur þróttar hefst á laugardaginn. ég er í tveimur liðum; með pabba í einu og halla í einu. pabbi er pro (nema hvað hann tippar alltaf öruggan einn á west ham) en hallur does not have a clue. ég verð að taka stjórnina í báðum liðum. Rafal og geiri eru svo saman og verður gaman að salta þá!!
ég lýsi enn eftir tannkreminu góða!
auja skrópaði á foreldrafund í gær. það er lélegt. hvernig er það hægt spyr ég! þetta eru langskemmtilegustu samkomur sem þú getur fundið!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! ég og eysteinn vorum alla veganna að standa okkur. komum með hvern 15 aura brandarann á fætur öðrum. ég vil samt fá betri mætingu næst.
jæja. áfram að lesa bókina pigs in heaven. á bara eftir góða 9 tugi af blaðsíðum fyrir morgundaginn (sem er samt eins og að drekka vatn fyrir MHM). þannig að áfram með etta. og góðar stundir.
posted by 4fl at 5:17 e.h.
þriðjudagur, febrúar 11, 2003
jójó
jójó
meðan ég man - ef einhver á michael jackson heimildarþáttinn á vhs vídeóspólu, má hann alveg hafa samband. maður er búinn að vera úti í horni og ekki getað tekið þátt í umræðum um kallinn, alveg síðan þátturinn var sýndur. engin dýrkaði hann meir en ég - það er meir að segja til 4 mínútna mjög frægt vídeóclips með mér, 10 ára, dansandi eins og ég fengi borgaði fyrir það, við lagið bad! nettör.
bunch af myndum komnar á netið af maurunum upp á skaga. hérna er líka ein af totti:
annars eru menn bara hressir. Sören er að fara að þjálfa með okkur og strákarnir frekar spenntir. Mér finnst upplagt að allir fari að tala dönsku á æfingum. de go fint.
posted by 4fl at 11:27 f.h.
mánudagur, febrúar 10, 2003
massa veður.
menn að biðja um frí á æfingu. spurning!
annars datt maður út áður en all star leikurinn hófst. toppið það. djöfull er maður orðinn slappur.
halló tannkrem.
posted by 4fl at 10:32 f.h.
sunnudagur, febrúar 09, 2003
gleymdi einu. sáuði zidane í gær.
jesús hvað hann er of góður í knattspyrnu.
maður verður í bullinu á næstu æfingu. bíðið bara. bara flair.
posted by 4fl at 5:29 e.h.
heil
og
sæl.
stutt eftir af helginni. all star í kvöld. alveg spurning um að enda helgina á smá gúfferíi!! vorum upp á akranesi alla helgina. misstum af þorrablóti þróttar sem var í gær. græt ekki að hafa misst af matnum - og ekki heyrt mikið slúður en gunn inga var víst að standa sig sem ræðumaður kvöldsins. já akranes. þokkalegt pleis! strákarnir kepptu í góðum 14 vindstigum á ísilagðri mölinni í morgun. toppar það fátt.
jafntefli við kr á föstudaginn. það var bara ágætt. kallinn bara að standa sig í "skemmtistöðunni" eins og ég kýs að kalla bakvörðinn. hallur náttúrulega með nett læti við nokkra liðsmenn kr. eitthvað sjó off hjá honum. viggi í parís. hvað er það eiginlega. maðurinn er alltaf úti í útlöndum. eysteinn á blöndósi. hvað er það eiginlega. dollann hans kemst varla upp í egilshöll.
fyrirhugaður æfingaleikur hjá fjórða á morgun frestaður, en þar sem engin af þeim segist lesa þetta rusl blogg mitt fá þeir ekki að vita það fyrr en á morgun. þeir verða ekki sáttir. taka netta "áttundubekkingaégeralltaffúllogþoliekkiskólann" ræðu á mig. er orðinn ansi þreyttur á henni. en mar kann á þessi kvikindi enda bara búinn að þjálfa þá síðan þeir voru níu ára!! segjum það í bili. væntanlega opið hús hjá okkur yfir stjörnuleiknum. ég ætla að troða mér í gamla scottie pippen bolinn minn síðan í denn. shit hvað það verður fyndið.
posted by 4fl at 5:26 e.h.
|