þriðjudagur, apríl 05, 2005
sæl og bless.
haldiði að síðan hjá kjadlinn hafi ekki verið í feitu plöggi á fótbolti.net - er enn ekki kominn með teljaradót þannig að þetta bíttar kannski ekki miklu.
liverpool að vinna juve. ekki slæmt. vissum það nú alveg. er svo að fíla Vennegoor of Hesselink í psv eingöngu út af nafninu. þokkalega töff. ef etta væri á íslandi væri etta kannski eysteinn af blönduósi!!
veit ekki með þáttinn lost á gufunni í gær. né hvernig þessi þáttur á að ganga í 23 episodes!! en við sjáum til.
ösnuðumst til að hafa leikjadag eftir skóla í dag. ekki nóg með að skólinn var til tvö og tveggja tíma pása frá maurunum var bara ekki nóg, heldur var ógeðisveður og ekki skemmtilegt að vera í snúsnú í polli, hvað þá ef maður er svokallaður staur. en allt fyrir börnin.
er að stefna á 10 miða kort á kvikmyndahátíðina á fimmara. hver er með? á samt örugglega eftir að enda sóló á einhverja mynd. nokkrar góðar að koma. t.d. títtnefnd sin city (reyndar ekki á hátíðinni).
aju
posted by 4fl at 9:35 e.h.
sunnudagur, apríl 03, 2005
heyja.
helgin búin. ekki nógu gott.
vorum ekkert sérlega ferskir í gær á fylkisvelli. fjórir leikir í röð og það snjóaði eins og í ölpunum! án gríns. unnum 2 og töpuðum 2. nokk gott.
unnum hk áðan í mfl, en þið vitið það nú öll! fjölmenntuð á leikinn! ég saug! það fannst mér alla veganna. átti fjölmargar góðar sendingar beint á hk menn. reifst við hall. og lét einhvern maur sóla mig fimm sinnum. held samt að ég hafi komið ágætlega frá essu áhorfendasjónarhornsmeginn. geiri öskraði nú samt nógu mikið. alla veganna. 6-0. það er nú ágæt.
annars er nú mál málanna hin nýja klipping sem nú prýðir kallinn. það eru eflaust skiptar skoðanir í gangi! en mér finnst etta töff kaffi.
haldiði að við höfum ekki fengið 11 rétta í gær. og 16.000 kadl kominn í hús. já menn voru ekvað að blóta essu, og þá helst þeir sem fengu undir 10. ég bendi þá bara að tala við svein og þobba næst þegar þeir tippa. og við erum komnir í fyrsta sætið í riðlinum. gott mál.
posted by 4fl at 10:02 e.h.
|