laugardagur, febrúar 10, 2007
nei í alvöru, ég hef bara ekki við að lesa öll commentin!
:-(
posted by 4fl at 8:44 e.h.
tveir skandalar á æfingu þessa vikuna. - landsbyggðin vann borgina á miðvikudaginn. það var frekar mikið sjokk. svo gerði vörnin jafntefli við sóknina á æfingu í dag. kjappinn audda í sóknarliðinu (lokins kominn þjálfari sem veit hvað hann syngur). blóðtappinn farinn að fara í skallaeinvígi og allt!
tók nett shopping spree í dag. diskur, dvd og tímarit. er enn að bíða eftir fólki að koma með mér í kílókaup í spútnik.
fór á blood diamond í vikunni. nokkuð sáttur en endirinn svona soldið svekkjandi. get eiginlega ekki sagt meira án þess að eyðileggja hluti. næst er það svo klárlega Pans L....... ekki sjens að muna hvernig þetta er skrifað.
gríðarlega ósáttur við egilt að skippa fjölskylduboðinu. ekki breik að hann fái levi´s bolinn sinn aftur í bráð.
posted by 4fl at 8:39 e.h.
híhí.
þorrablótshelgi í gangi. reyndar kalkúnn í gær í þorratíðarpartý langó. það var nett. svaka mæting og gott stuð. ég náði reyndar ekki að komast í gírinn fyrr en ég var búinn að sýna stuttmyndina mína. í fyrsta lagi merkilegt hve mikil vinna fer í skitnar 7 mínútur af efni. og í öðru merkilegt hvað maður getur verið stressaður að sýna sitt verk (djö hljóma ég eins og mikill kvikmyndaspaði). en hvernig höndla kóngarnir þetta úti.
Alla veganna, verð nú að læra að setja etta kaffi inn á youtube. getur ekki verið mikið mál.
erum svo í fammelíublóti. náði að finna eitthvað ætt, og treysti svo á svaka eftirrétt.
systir mín að gera gott mót þessa daganna. í fyrsta lagi er hún komin með æfingaaksturinn. mamma búinn að fara með hana í fyrsta ökutúrinn, sem var akstur á æfingu. hefði gefið allt fyrir að skipta við sigrúnu og vera í aftursætinu í þessari bílferð. dadda, a.k.a. grimmhildur, sagði 39 sinnum "hægðu á þér", og harðbannaði að nýi æfingaaksturs-mixed-diskurinn yrði spilaður.
í öðru lagi leigði hún sér bás í kolaportinu í dag ásamt diljá. lét sjá mig í lok dags, þegar þær voru enn í mínus (básinn og fatahengin köstuðu sko böns). splæsti að sjálfsögðu kókosbollu á línuna (shit hvað þær eru góðar í portinu) og keypi síðan tvær ljótustu peysur sem ég hef á ævinni séð. hendi þeim í óskar og frú sem koma, án gríns, með að klæðast þeim. vildi helst kaupa mér fötin sem ég lét sóley hafa í púkk, en það hefði verið frekar dapurt. en samt skrýtið að þau hafi ekki verið rokin út fyrir hádegi!!
posted by 4fl at 8:30 e.h.
sunnudagur, febrúar 04, 2007
hi.
superbowl í gangi. ekki nógu hress gaurinn sem er að lýsa essu kaffi. en leikurinn byrjaði vel - tötsdán eftir strax eftir 14 sek. einhver antilópa kláraði hlaupin - og einhver gaur sem heitir "Tank" náði ekki að tækla hann.
pólland náði ekki að fara alla leið í handboltanum! treysti að rafal lesi bloggið mitt þannig að ég segi fyrst "kemur" - og svo "meilaðu á mig". langt síðan ég hef heyrt í kallinum.
Sören var ekki lengi að meila á mig og hrauna eftir eins marka tapið á síðustu sekúndunni. erum þá nefnilega búin að tapa fyrir þessu blessaða landi í handbolta og fótbolta. ekki nógu gott.
kommóðan/skiptiborðið komið upp. náði að dobbla pabba að koma og veit mér hjálparhönd. annars sá ég nú að mestu um etta! hann var bara meira í að rétta mér hluti.
posted by 4fl at 11:39 e.h.
jebba.
eymi plataði mig og egil á sbarro (held að það sé skrifað svona) á föstudaginn. kiddi komst ekki - var að læra (eða chilla með helgu!) alla veganna, fékk mér svefnpoka (held að það hafi heitið það). ekkert smá gott (og hollt) (soldið mikið af svigum hér).
hlýt að vinna í rauðvínsklúbbnum upp í skóla í vikunni. fimm skipti búinn og ég og smalinn með egg.
áttaði mig ekki fyrr en ég var kominn inn í smáralindina áðan að ég var í æfingabuxunum og alls ekki nógu flair. ekki nema 30000 manns að versla á útsölum. ótrúlegt en satt þá hitti ég ekki eystein þar. en datt á fanný sem plöggaði gleraugun mín enn og aftur. ekki nógu skemmtilegt að þurfa að halda á þeim heila bíómynd.
alla veganna, mánudagur á morgun. koma svo.
posted by 4fl at 5:24 e.h.
|