föstudagur, mars 10, 2006
heyda.
ekki ruby þegar bo átti ammæli, ekki ruby þegar kallinn átti ammæli og ekki ruby í dag þegar hallur á ammæli. ekki nógu ánægður með etta. sett etta í nefnd.
það er helgarfrí hjá fjórða. fyrsta skipti síðan um jólin svei mér þá. the assisstants voru svo glaðir að þeir grétu.
sá gaur í sundi áðan með þríbura. algjör snilld. allir á milljón að fara í sitthvora áttina. tók svona 45 mín að klæða þá í - örugglega bara chill að detta með þá í laugina!
pabbi út í london um síðustu helgi - mamma út í london núna. lúxus er etta. sigrún frænka er með líka þannig að ég býst við skandal!
liverpool - arsenal á sunnudaginn. koddu með það. svona 8 myndir sem ég væri til í að sjá í bíó, verð að fara huske mæj.
svo bara herrakvöldið. aju
posted by 4fl at 9:56 e.h.
fimmtudagur, mars 09, 2006
heyja.
ekki nógu ánægður með etta. real og liverpool úr leik. annars fínir leikir, 3 leikir á sama kvöldinu - bara snilld. guðrún er sammála. og það var ekki ég sem startaði pedsu gúffi bæði kvöldin, höfum það á hreinu.
allt brjálað í kennó út af einhverju plakati! rosalega flottu plakati. fólk verður eiginlega að gera sér ferð og sjá það!
Þorgrímur lét sjá sig til okkar upp í skóla í morgun. ánægður með hann - líka í þokkalega nettri týpu af vans skóm. þarf að athuga það aðeins.
fórum í karate tíma í mfl í gær. (eftir massa hlaup með fjórða). ja hérna hvað það tók á. spörk og læti. birkir fékk að kenna á massa höggum frá kallinum! hefði samt viljað fá the complete workout hjá dóra hilmis á spólu! en maggi lú tók ekvað upp.
klikkað veður úti. fínt að fá sigur í excel skjalið í kvöld. aju
posted by 4fl at 3:25 e.h.
þriðjudagur, mars 07, 2006
jó.
merkilegt hvað systurnar geta horft oft á dirty dancing! ég meina það. ég er nú búinn að fela myndina fyrir sigrúnu og mun ekki gefa mig.
egill er svo búinn að taka það á sig að þrífa wc-ið í sigló. ánægður með hann.
duttum á Walk the line um helgina. þokkalega góð. samt ekki "er búinn að fara þrisvar sinnum á hana" góð. eða hvað sóley? það kom einn staður fyrir í myndinni sem heitir Wheeling og er í West Virginia. þá sagði kallinn; been there! jamm road trip með gannon. unnum leikinn minnir mig.
lag dagsins: galvanize með chemical brothers. gott kaffi.
bróðir kominn heim aftur - múttu til mikillar gleði. er líka farinn að draga hann á 4.fl æfingar. er að byggja upp 8 manna staff í kringum ennan flokk!!
Styttist í Herrakvöldið. treysti á menn að vera ekki með móral og láta sjá sig. á það inni hjá ykkur!
posted by 4fl at 9:36 f.h.
Pétursborg:
Já, bara hin nettasta ferð. fyrir utan ferðalagið út og að missa af bolludeginum. tvær flugferðir og rútuferð dauðans! en gúrka bjargaði miklu. Eysteinn reyndi að koma inn blöndós reglunum en ég offaði þær snarlega.
stoppuðum aðeins í svíþjóð - náði að taka púlsinn á bakaríinu þar. þvílík snilld. stoppuðum líka aðeins í finnlandi. fengum okkur gott gúllas! tollurinn í rússlandi var svo huggulegur, hresst lið að vinna þar!
Hótel Moskva slapp alveg. hið fínasta hótel. góð herbergi, góður bar með pool borði. lítil kjörbúð og 468 litlar súviner búðir. mini keila, súlustaður og stutt í laugarveginn.
Eysteinn var ekki hinn hressasti fyrstu tvo daganna en kom svo sterkur inn. náði að vinna mig í frikking mini keilunni (guðrún var líka góð í því), pool og gúrku. En ég vann rassgat og verslun með vinstri.
björgvin ívar missti sig í vodkanu, sem var by the way gefinn í hvert mál. á að vera til í fernum en við fundum það ekki :-( annars var ég og hin ólétta hilda í teymi hvað drykkju varðar.
maturinn í pétursborg var allt í lagi. nema kjöt í káli síðasta daginn. fundum tvo netta veitingastaði on our free nights! morgunmaturinn hefði mátt laga.
Annars er borginn svaðaleg. allt út í morknum hlussu blokkum og svo fáránlega flottum höllum. sáum kgb heddkvarters - hefði ekki verið spenntur að detta þar inn. fórum í Vetrarhöllina og sáum m.a. 25 rembrandt verk og ekvað van gogh kaffi - ekkert nema gamlar konur að vakta pleisið og var maður búinn að plana öruggan þjófnað. leiðsögumennirnir okkar voru í ruglinu - vissu allt.
Náðum ekki að fara á staðinn sem jón arnór talaði um - gerum það bara næst. ekkert svo kalt - um 10 stiga frost við og við. það slapp alveg.
ekki ein magaæfing tekinn í ferðinni - frekar lélegt. pressa að koma sér strax aftur í gírinn.
á heimleiðinni náðum við strikinu í tvo tíma. náði að taka smá power shopping - hittum líka magga og guðbjörgu, siggu og funa og möggu. good times. verst að hafa ekki verið séður og plöggað flugi heim tveimur dögum seinna.
en fín ferð. aju
posted by 4fl at 8:51 f.h.
|