laugardagur, janúar 01, 2005
jebba.
enda örugglega á að klára 3 myndir í dag! ocean´s 11, chicago og
síðast en ekki síst the chronicles of riddick!
letidagur ársins! nenntum svo ekki á brennu. frekar lélegt.
en bara ekkert kalt úti!
stefnir allt í bláfjöll á morgun. loksins loksins.
sé ykkur þar.
posted by 4fl at 11:23 e.h.
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
ekki leiðinlegt að vakna og kveikja á imbanum og
kviss bamm búmm (stolið) - liverpool v chealsea.
hljótum að taka etta. mike riley reyndar ferlega slakur
á flautunni.
annars var gamlárskvöld að þessu sinni rólegt (er yfirleitt
mjög wild hjá mér - einmitt). dóri (hin ljóshærði) vann sprengikeppni
raðhúsaraðarinnar í ár. einhver brögð í tafli samt! sveinn var tiltölulega
rólegur. sem og unglingurinn.
sing star leikurinn var svo alls ráðandi í húsakynnum foreldra björgvins ívars.
þar fór hallur hamförum með míkrafóninn. ég meir að segja tapaði fyrir
honum. hvað var það eiginlega? bjarki þorði svo ekki í mig. og ég þorði ekki í bjögga!
en guðrún hélt uppi heiðri sigluvogs og rúllaði funa upp.
duttum svo í vesturbæinn á evu og gunna þar sem mér tókst svona
skemmtilega að dundra digitalus vélinni þeirra í gólfið. tek það algerlega
á mig. annars bara heim um fimm ish.
koma svo 2005.
þessi líka myndarlegi og stóri spegill er kominn á vegginn í sigluvoginum.
öss, nú get ég speglað mig í nánast öllum herbergjum íbúðarinnar. hata það
ekki.
hver þorir í popppunkt?
posted by 4fl at 1:19 e.h.
föstudagur, desember 31, 2004
djók er etta.
töpuðum fyrir ungum. þvílíkt spaug.
og elli af öllum mönnum skoraði sigurmarkið í
overtime. vorum mun betri í öllum leiknum. skil
ekki hvernig við fórum að þessu. verð í fýlu í kvöld!
tvær nettar kökur og tvær nettar bombur komnar í hús.
verð rólegur í skjóteríinu í kvöld. leyfi sóley að sprengja upp
barnapakkann sinn. góða skemmtun bara.
farið bara rólega og notið gleraugun.
sund skv. hefð á morgun. kl.15.00. nema hvað magnús er enn úti
í löndum :-(
annars takk fyrir gamla árið.
kem með annál á morgun.
góða skemmtun í kvöld.
aju
posted by 4fl at 3:29 e.h.
fimmtudagur, desember 30, 2004
hellú.
það var ekki mikil samkeppnin í gær í annarri umferð
popppunkts. ég og egill unnum þá félaga eystein og eyma
með svomiklum yfirburðum að það hálfa væri nóg. eysteinn
heldur svo að hann sé ekvað betri í trivjal. sjáum til.
títtnefndur eysteinn var reyndar aðeins betri í körfunni í dag.
eymi blóðlitli sýndi ekki mikla takta. og kiddi , well.
ég sýndi að sjálfsögðu gamla takta - sem sáust síðast niðrá holtavegsvelli
´95 í leik við pete dog og begga morthens. held að gvari hafi
meir að segja tekið þann leik upp. þá var ég í flottustu körfuboltaskóm í rvk.
nike david robinson pump skórnir! dam. maður horfði líka bara ekkert oft á
white men can´t jump. massive respect snipes!
datt svo með the kids á the incredibles áðan. þessir menn bara toppa sig í
hvert skipti. snilldar mynd.
minni svo á ungir v gamlir kl.12.30 á morgun.
posted by 4fl at 11:18 e.h.
miðvikudagur, desember 29, 2004
haldiði að ég hafi bara ekki klárað the da vinci code!
já tók ekki nema 4 mánuði. ótrúlega skrýtið þar sem þessi
bók er búin til þannig að í lok hvers kafla gerist ekvað svakalegt og mar
verður eiginlega að lesa strax næsta. aldrei verið mikill lestrarhestur.
spurning hvaða bók mar taki næst.
eymi bara að missa sig á öppdeitum!
jæja nú hlýt ég að fá hall út að hlaupa!
eða gamla gamla.
góðar stundir.
og hérna maggi minn!
posted by 4fl at 4:29 e.h.
jójó.
slóg næstu metið í að standa í gær. held að einhver indverji
á það. stóð við eitthvað tré í 7 ár! vorum sem sé með 8 lið í rvk mótinu
innanhúss. fengum eitt gull. segi ekki í hvaða liði. eymi og egill
stóðu sig svona lala. vældu lítið en náðu ekki að plögga snúð fyrir strákinn.
duttum svo á the return of the king í gær. að sjálfsögðu special extended
edition. menn voru ekki að nenna að kíkja á hana með okkur. en dem hvað
þessi mynd er klekkuð. bíð bara eftir næstu mynd jackson. tippa á að hún verði
ekki tæknibrellulaus dramamynd!
menn bara að rífast út af mugison! skítt með hvort þeir félagar eru líkir eða ekki,
hvað ætliði að gera í lagi nr.5 - "what I would say in your funeral"! það er bara í
djókinu. held að ég smelli mér á fyrsta diskinn soon. sem og illgresið með skyttunum.
er það ekki.
stefni á stórsigur í popppunkti í kvöld. og jafnvel að mar taki upp fimbulfambið.
"gúranga-pate-gund". tek það ekki á mig. illa skrifað.
posted by 4fl at 1:05 e.h.
mánudagur, desember 27, 2004
jó.
hvað er með jeff survævorboss? hann fer rosalega í mig.
samt horfir mar á etta rugl. og gottetta chris með ponytailið.
þetta hlýtur samt að fara að verða komið.
8 tímar í egilshöllinni á morgun. já kíkið á kallinn. tökum etta
með trompi. þjónn 1 og þjónn 2 taka etta með mér.
incredibles næst á dagskrá.
er að hlusta á herra mugison. bara nettur. soldið líkur herra rice.
eða öfugt. svo er gröndal nett.
posted by 4fl at 9:15 e.h.
jæja.
held að nokkrir hafi blótað þvi að fara í vinnuna í morgun.
meðal annars pabbi. og freyr! jólafríið góður plús við kennarastarfið!
var að vonast eftir að gera kíkt í bláfjöll í fyrsta skipti á þessum vetri.
en veðrið ekvað leiðinlegt. væri geggjað að komast fyrir áramót. spurning
hvernig statusinn sé á sauðakróki.
gottetta ungt fólk í grindavík. veit svo sem ekki alla söguna en kommon.
hefðuð betur kíkt á tónleik með kalla.
jólakortin okkar í boltanum og í skólanum í ár að gera gott mót. bara þannig að það sé á hreinu þá er etta ekki "photoshopað". ó nei.
styttist í ungir v gamlir. þar verður haukur tekinn og pakkaður inn með slaufu.
sérstaklega eftir "hálftímaofseinntæklinguna" hans á síðustu æfingu fyrir jól.
erum við ekkert að spauga með ennan jarðskjálfta.
8.9 á rikter. það er rosalegt.
duttum á "í takt við tíman" í gær. hún var svo sem ágæt.
alltaf gaman að fara á íslenska mynd. maður fær svo aðallag
myndarinnar vel á heilann.
ég og guðrún töpuðum svo naumlega í popppunktspilinu í gær
fyrir möggu og ingva (já algengt og flott nafn). spurt var um post
plötuna hennar bjarkar í lokin og gaf ég möggu eiginlega bjöllusvarréttinn.
posted by 4fl at 2:37 e.h.
sunnudagur, desember 26, 2004
jó.
datt með bjarka, eyma, halli og agli í fúss áðan. æ nei,
hallur kom ekki, ekki heldur eymi né egill! ekki sáttur.
en vann bjarka í one on one.
fallegasta manneskja í heimi, fyrir utan mig, á afmæli í dag.
hlýt að fá prik fyrir þetta. fékk samt ekki að syngja afmælissönginn
áðan í fammelíuboði. tek hann bara í kvöld.
stuð í eyjum hef ég heyrt. jólasprang og svona.
stuð á blöndósi hef ég heyrt. held að stöð 2 hafi náðst um hátíðirnar.
stuð í tókíó hef ég heyrt. fundur með deildarstjórum kl.18.00 á aðfangadag.
stuð í sviss. the takefusas á bretti og svona.
hlaup nr.2 ekki nógu spennandi hjá geira. gott hallur. sofðu bara
kútur!
posted by 4fl at 4:49 e.h.
jebba.
bara ekkert búinn að gúffa. nei nei. eða nota öll búsáhöldin
sem við fengum í jólagjöf. ok léleg kaldhæðni. fékk fullt af fínu
dóti. fullt í búið. en líka tvær húfur :-) fékk líka myndina
the 51st state frá halli. langaði reyndar í myndina 50 first dates.
spurning hver tekur það á sig!
búinn að taka hlaup nr.1 hjá geira. hamborgarahryggurinn var
ekkert sérlega sáttur með það. en ég massaði það.
sóley er að vinna sigrúnu í friends spilinu.
erum ekkert hissa á því.
allir veikir í fammelíunni! búið að fresta boði á morgun og allt.
spurning hvort mar taki þá ekki gott spilakvöld eða jafnvel bíóið.
hafið það gott.
posted by 4fl at 1:41 f.h.
|