laugardagur, ágúst 06, 2005
jájá.
menn bara ágætlega ferskir eftir nuddið í gær. gerðist svo sem ekkert markvert á æfingu áðan. nema hvað það er búið að festa pör í liðleikaæfingunum hans atla - gerðist víst með ég var úti. ekki sáttur við etta. gæti átt í hættu að lenda með atla. þá þýðir ekkert utanfótar.
er enn í skýjunum eftir að eysteinn sagði mér að skatturinn skuldaði mér - ekki ég honum. var orðinn soldið nervus. fagnaði því með nýjum disk í gær. er svo búinn að plögga geislaspilara í skutluna. tekur sig vel út þar.
ekkert búið að hringja í kallinn til að flytja gamla settið hans halls upp í sveit (breiðholt). ótrúlegt að þau þurfa ekki tankinn í þungu hlutina!
sigur rós að spila í edinborg í nóv (koma svo hjalli eða doddi). eru líka í liverpoolborg sama mánuð (koma bjarki). væri ekki leiðinlegt.
sé ykkur svo niðrí bæ. aju
posted by 4fl at 1:24 e.h.
föstudagur, ágúst 05, 2005
hvað er annars nýtt?
- fjalli farinn að þjálfa 7.flokk. ánægður með hann. þarf að dobbla hann á 4.fl æfingar.
- hinir og þessir að taka snapp á æfingum. dóri er eins og ljónið á sektarbókinni. annars er ég víst hæstur eins og staðan er í dag. töff.
- tveggja helminga skórnir mínir að gera gott mót. soldið verið að skoða þá.
- dreginn út að hlaupa klukkan 0 seven hundred í morgun. þokkalega ferskur eftir það. frekar lúinn núna samt.
- golfinn er seldur. já sorrý. no more rides í honum :-( nú er það bara steisjoninn hægri vinstri. búinn að kaupa græna kortið á guðrúnu.
- bjöggi er 32.ára. öss. haukur er 18.ára. hverjir áttu svo líka afmæli?
- mfl í nuddi áðan. ekki nema tveggja tíma bið - reyndar eftir þessu líka netta nuddi. skulda dóra feitan greiða. dúsan vann ljótustu skýluna. og hvað er með ungu púpurnar að vera fyrstir?
- hinsegin dagar um helgina. kíkir mar ekki á gönguna á morgun. það er orðin hefð. eða golf með lögfræðingnum.
- wedding crashers eftir smá. er hún ekki of fyndin?
- james blunt. í bullinu. float on. í bullinu.
- keflavík á sunnudaginn. koma svo.
posted by 4fl at 9:16 e.h.
halló.
já ég veit. tek þetta á mig. aldrei liðið eins langur tími. mikið búið að skamma kallinn.
EN
fór sem sé til skotlands með fjórða. þokkalega nett ferð. nema hvað eymi og egill voru leiðinlegir við mig. hengu í manager alla ferðina og ég bara einn að horfa á taxi (sem ég by the way sofnaði 5 sinnum yfir), resident evil 2, anacondas og back to the future. myndir 2 og 3 voru rosalega slakar. samt ánægður með útanáliggjandiharðadiskinn sem hægt er að tengja við tv, sem egill á. var mikið notaður.
ferðin byrjaði samt ekki vel. eymi varð bensínlaus 40 metra frá bsí. algjört bögg að þurfa ýta druslunni hans kl.04.10. svo eyddi ég ferlega litlu. náði samt að plögga 12 diska og 12 dvd, tvenna skó og hearts treyju. var svo að sjálfsögðu með á hverri æfingu. leiðinda aðstoðarpúpurnar bögguðu mig svo meira með því að fá sér báðir nýjustu preddana þannig að ég var einn í gömlu týpunni. bull. enda var ég ferlega pirraður undir lokinn og lét þá maura sem mættu 2 mín og seint á atburð hlaupa ógeðis steina 90 sekúndna spretti. já engir sjensjar. fórum aftur í parísarhjólið í ógeðisbretatívolíinu. duttum svo á hjalla í edinborg. eymi og egill fengu skutl. tók ekki sjensinn á hjálmari vinstra megin við stýrið.
maurarnir annars hressir. og fararstjórarnir. fín ferð. myndir fljótlega.
posted by 4fl at 9:06 e.h.
|