miðvikudagur, desember 04, 2002
jæja. ágætis stemmning á miðvikudegi. sundferð: datt í sund annan daginn í röð í morgun. kl.8 takk fyrir. svona til að gera sig kláran í lærdóm dagsins. þetta hefur virkað frekar vel nema hvað ég var svaðalega lélegur á æfingu í gær. alla veganna. fyrsti maður sem ég sá í gær kl.8.14 var ásgeir el - mættur á bakkann til að kenna maurunum baksundstökin. svo hlustaði ég á svona 9 sögur um veðrið og þess háttar. lagði ekki orð í belg og sat einn mest allann tímann. það var samt nett. svo var halldóra þokkalega góð við mig báða daganna. undir 75 - ég er bara skorinn - nei við skulum ekki alveg missa okkur, alla veganna. sjáumst í sundi í fyrramálið.
þeir sem eiga í vandræðum að sofna í kvöld, hringja bara í mig og ég les eina línu úr aðferðafræði glósunum mínum. viva el jól.
posted by 4fl at 3:06 e.h.
jó. verð bara að minnast enn og aftur á coldplay. sorry sumir! sit og horfi á miðann minn meðan myndband ársins rúllar á p.tíví. nett. próflestur.is - það er samt bara cósý. er með aðstöðu hjá ömmu gömlu, þvílíkt vel hugsað um mann. aðferðafræði á föstudag. það er hætt við subway eftir prófið!!
brósi ennþá injured. dont get me started! hann verður bara að massa etta. mist með yfirlýsingar um að beila á boston public - hvað er það. verð nú að ræða þetta við dömuna. og halló. teljara á mig straxþ
leikur á sunnudag við kr. díses. hvað er með suma menn í liðinu okkar. spurning um að taka einn jóga tíma til að róa liðið aðeins niður. hvar á ég að byrja. hallur greip í punginn á veigari og sagði svo; hvað ætlaru að gera. veigar greip í punginn á eysteini og eysteinn buffaði einhvern inn í vítateig (víti). palli tók góðar 4 face to face meldingar. bjössi litli tók nettan keane á einhverja sultu og ég, nú ég var bara að lúkka í nýju skónum, átti frekar plain leik í vinstri bakverðinum, klassa staða! lummi frekar rólegur. hans og jens ekki með - en þið vorum kannski búin að átta ykkur á því þar sem þeir voru ekki nefndir í byrjun!!!
datt á harry með mömmu og sóley - við erum ekkert smá skrýtin, þurftum náttúrulega að sitja í sömu sætum og í fyrra. spáið í að vera svona vanaföst. nú veit ég hvaðan ég hef þetta.
ætla hér með að toppa ólu! 6+6+9 æfingar í síðustu viku.
vil svo minna fólk á jólakvöld 5.flokks - þar verður frumsýnt nýtt myndband með þjálfurum. eysteinn með leiksigur!! góðar stundir.
posted by 4fl at 12:39 f.h.
sunnudagur, desember 01, 2002
maggi venur kíkti oftast á bloggerinn minn í nóvember skv, talingu sem ég er með falda á síðuna, svo segir hann aldrei kíkja á þetta. skrýtið. og 100 stykki á síðuna hennars mistar. hvað er það. djöfull er hún að standa sig, gúff hjá baldri - gúff þýðir sem sagt að borða vel og mikið, oftast eitthvað óhollt. menn hafa verið að velta þessu fyrir sér. fyrst ég er að þýða þá er chill: mikil og góð afslöppun. nú að þetta að vera komið.
hvað meira - liverpool - man.utd á morgun. koma svo strákar. opið hús í rauðalæknum fyrir áhugasama. annars bara fjórði v breiðablik og æfingar og leikur v kr í egilshöllinni. þarf næstum að taka með nesti! so bara study.is í vikunni. próf dauðans á fös - sem er reyndar bara spaug á magga mælikvarða - sem er líka að fara í próf á föstudag. ok sir. spurning aðeins að kíkja á agavandamálaritgerðina mína. bara fjör.
posted by 4fl at 12:13 f.h.
hey. var að taka eitt af hinum fjölmörgu testum mistar. ég er sem sagt soldið "sjötti áratugurinn". nett.
Which era in time are you?
posted by 4fl at 12:04 f.h.
|