laugardagur, desember 08, 2007
jahá.
leikur í gær v Val. mun skárra en fyrir viku en tap engu að síður. fengum á okkur mark á 45 sek en það við sat. var ekki alveg að höndla einhverja gasellu á hægri kantinum í byrjun en það reddaðist. svo erum við að tala um að maur fæddur 91 fór einu sinni illa með mig, reyndar tók tók jackó okkur báða á sprettinum - það leit ekki vel út.
er einstæður faðir næstu fjóra daga. guðrún skrapp til köben í kæruleysið. fín æfing fyrir vorönnina.
gamlir unnu loksins á æfingu áðan. komin tími til. bjössi reyndar í marki en það reddaðist.
posted by 4fl at 2:04 e.h.
miðvikudagur, desember 05, 2007
amm.
djöfull var ég slakur á æfingu áðan. annað eins hefur varla sést. get næstum afsakað mig á að æfingin var á ókristilegum tíma og juniorinn vakti eins ljónið.
hvað haldiði! óskar búinn að fá sér hund. einhvers konar svona kaffi! mjög nettur. verður samt lítill en ekki chilllaíhandtösku lítill. sé líka svein fyrir mér úti að labba með hann.
skautar með maurunum á eftir. stefni ekki á fyrsta sæti í kennarakeppninni í ár. ekvað aumur eftir vikuna!
posted by 4fl at 8:20 f.h.
þriðjudagur, desember 04, 2007
jó.
við erum að tala um að satan hefði ekki farið út í frímínútna vakt í morgun. það var ekki auðvelt að vera jákvæði gaurinn og hvetja krakkana að detta út í eltingarleik í þessu ógeðisveðri. tók samt góðann 1-2-3-4-5 dimmalimm.
eigum við ekvað að vera ræða leikinn á sunnudag. tek alla veganna tvö kvikindi á mig. þolið og snerpann soldið að stríða mér. en hlýt samt að hafa verið nokkuð flair - með marquezinn!
ekkert annars!
posted by 4fl at 3:50 e.h.
sunnudagur, desember 02, 2007
hóhó.
startar þetta ekki smá jólaskapi hjá manni! svo á að kveikja á jólatrénu á austurstræti í dag, hefð að kíkja á það!
tókum hlaðborð með agaskóla á hótel valhöll í gær. verulega good stöff. misstum okkur samt ekki, sem var eins gott þar sem að guðbjörg og maggi voru búinn að útbúa killer rétti í naustabryggjunni! möffinsið hans magga fór samt ekki út - held að sóley (surprise) hafi verið sú eina sem datt á það þegar hún sótti okkur.
tómas í næturpössun hjá mömmu og pabba - voru bara ekkert búinn á því í morgun! mamma var sofnuð áður en við feðgar kvöddum! ertu að grínast hvað gamlir voru slakir á æfingu í gær. jenni varði reyndar ekki skot og elli gaf ekki boltann en samt - skandall. leikur v FH í kvöld. pant fá matta á mig á sprettinum :-(
posted by 4fl at 11:25 f.h.
|