föstudagur, janúar 20, 2006
jebba.
kjötsúpan ekki alveg að gera nógu gott mót upp í skóla. spurning að stelast í bakaríið á eftir!
kominn í 4-4 í nýja spilleiknum hjá mfl. haukur reyndar efstur með 6-2 en það breytist fljótt.
bóndadagurinn í dag. gríðarlega pressa á guðrúnu. annars mun ég beila á þorrablóti hagaskóla í kveld. soldið lélegt hjá mér.
sé bláfjöll í hyllingum. af hverju er mar á æfingum 6 daga vikunnar og að þjálfa 5 daga vikunnar?
annars bara feitur helgarfílingur. góða helgi.
posted by 4fl at 12:46 e.h.
fimmtudagur, janúar 19, 2006
jó
massaði foreldraviðtölin með vinstri. var reyndar sakaður af nemanda að vera "mjög stressaður" - neita því algjörlega. en þegar báðir foreldrar láta sjá sig (sem er náttúrulega mjög gott) þá er náttúrulega þrír á einn!
eysteinn kominn í bakveikaklúbbinn með baldvini og agli. talandi um baldvin! fékk þessa líka rugl dúndru frá honum beint í punginn á síðustu æfingu. við erum að tala um með tánni! að hreinsa frá markinu (þá dúndar maður sko meira en vanalega). af eins metra færi. og beint í mark. gubbaði næstum, án gríns.
fjallinn afmæli í gær. ár þanngað til við dettum til hans á ölver!
ekki nógu spes að hlaupa eftir grúppunni í gær en ég og egillb mössuðum etta í gær. einn sprettur og einn rólega - það nýjasta hjá hlyni. bara furðu "skemmtilegt".
píndi mig í the decent í gær. subbumynd er það. en kláraði hana!
Hallur fluttur - kominn í nýtt pleis; barðavog 38. þokkalega nett. í góðu göngufæri frá sigluvogi 5.
posted by 4fl at 8:01 f.h.
Myndir:
Fór á Just Friends fyrir skömmu, og svo á Jarhead. fór nú á þá fyrri bara til að vera góður við stelpurnar! ætlaði nú á Hostel en fórnaði mér (hver trúði þessu).
Báðar þokkalega góðar. mrs.smart náttúrulega á the list!
en ertu að grínast hvað þetta hefur verið súrt í "operation desert storm". menn í the core náttúrulega alveg heilbrigðir.
Diskar:
skellti mér á the college dropout og svo mezmerize. helvíti góður. hefði svo sem getað dónlódað þessum tveimur lögum sem mér vantaði, en you know. en það voru fleiri góð sem leyndust þarna. heyrið í mér ef þið viljið copy!
posted by 4fl at 7:56 f.h.
Jebba.
datt upp í Bláfjöll á laugardaginn var - eins og annar hver maður í reykjavík. jesús hvað voru margir mættir. tók okkur líka 30mín að finna stæði. 60mín að kaupa miða. og 25mín að bíða eftir hverri ferð í lyftunni. en mikið hrikalega væri hægt að gera betur þarna uppfrá. steikur in charge!
en djöfull voru þessar fjórar ferðir niður fjallið nettar. klárlega kíkt aftur um helgina.
10 ára Langholtsskóla ríjúníon síðasta laugardag. já hvað skal segja. bara nokkuð nett kvöld. böggaði stelpurnar soldið á staðnum sem varð fyrir valinu! gaukur á stöng, en slapp alveg. meir að segja einhver tattú gaur að mála á fólk þarna á efri hæðinni. fékk mér ekki þar sem ég gleymdi veskinu mínu! töff maður! en mar blikkaði bara gömlu bekkjarvinkonurnar og reddaði sér!
Mætingin slapp svo sem, reyndar vorum við strákarnir miklu færri. böns af liði komin með maura og svona. bara fyndið hvað mar hittir aldrei þetta lið út á götu.
og auðvitað var kallinn settur í undirbúningsnefnd fyrir 15 ára hitting. ásamt ingvari. og hér með baldri og halla.
myndir fara að detta inn á nýja síðu sem kallinn er að plögga. gottetta, fimmta síðan til að updeita. spurning um að hafa eina góða og stóra síðu en ekki fimm litlar!
posted by 4fl at 7:46 f.h.
Halló halló.
smá dauði í gangi. biðst bara afsökunnar. menn meir að segja farnir að hringja og skamma mig! náði lítið að skrifa sökum foreldraviðtala. bara ekkert feginn að því sé lokið!
alla veganna, hvað er að frétta?
Veðrið bara ekkert crazy síðustu viku! reyndar er nýja spútnik húfan mín og nýju kuldaskórnir að koma sterk inn. ætlaði svo að setja 66° úlpu á raðgreiðslur en mátti það ekki :-( en úlpa kostar ekki 30 kall! er það! en keypti mér netta lambúshettu. hún er töff. maður svo orðinn snilli í "snjóbolta" á gervigrasinu en það er reyndar orðið autt núna.
svo er nýjasta snilldin pizzuofninn okkar. verð næstum að fara að passa mig - bíðið bara þanngað til ég býð ykkur í þannig gúff.
3 sigrar komnir í hús á æfingum. er alveg að ná halli og hauki. bökuðum þá líka á síðustu æfingu. og er meir að segja kominn með excel skjal fyrir etta kaffi.
posted by 4fl at 7:38 f.h.
|