miðvikudagur, apríl 12, 2006
heyja.
duttum á ice age tvö með maurunum í gær. bara þokkaleg. líka þokkalegt hvernig egill náði að smyggla snúðnum mínum inn í bíóið. það var nefnilega harður gaur við innganginn sem bannað allt soleiðis!
hallur ekki enn búinn að fyrirgefa mér tæklinguna á mánudagsæfingunni. hva, smá barátta. svo átti Alli líka ekki aukaspyrnu dagsins. en ferlega svekkjandi að tapa á æfingu í gær. við erum að tala um að elli var sá eini sem fékk stig í skjalinu. og veit ekki hvernig eysteinn ætlar að tala sig út úr öllum bláu kössunum!
hvernig eru menn að fíla skeggið?
leikur í kvöld - á gervigrasinu í laugardal takk fyrir. nett að taka einn leik þar. gulli verður með tilboð í sjoppunni. menn hljóta bara að kíkja um sjö leytið.
haldiði að kallinn hafi ekki bara fengið gefins frumburð Original Melody! ekkert smá sprækir. lag 12 er í röglinu.
búinn að slátra history of violence, the assasination of richard nixon og svo the thomas crown affair. reyniði að koma með betri lista.
kjappinn verður out of reach fimmtudag og föstudag. já, guðrún að draga mig upp í afdala. veit ekki hvernig ég kem til með að höndla símaleysið - en það verður ljúft að komast í sveitina. skal fara á hestbak. tek líka brettið með.
jæja, laugar hjá guttunum. heyrumst á laug.
posted by 4fl at 11:54 f.h.
átti alltaf að koma með tölurnar! eftir hnitmiðaða útreikninga:
1 sæti - 11 sinnum útaf - 13 mörk. 2 sæti - 16 sinnum út af - 20 mörk. 3 sæti - 16 sinnum út af - 19 mörk. 4 sæti - 15 sinnum út af - 16 mörk. 5 sæti - 14 sinnum út af - 15 mörk. 6 sæti - 14 sinnum út af - 9 mörk. 7 sæti - 20 sinnum út af - 13 mörk.
posted by 4fl at 11:37 f.h.
sunnudagur, apríl 09, 2006
Jamm.
eftir fjóra leiki í fjórða, dómgæsla og allt, þá drógum ég og egil JR (a.k.a. sprota) út á tartan! beitti öllum brögðum í að reyna að vinna hann í sprettunum en án árangurs. egill tók því nú bara rólega, eins og víst fleiri nokkrum klst áður!!
en tókum svo "móralskann" í mfl í gær. good stöff. eftir rosalegan keiluskandal var dottið á Friday´s (tek það alveg á mig). sumir tóku þrjá rétti á etta, eins og á að gera! svo var brunað í barðavoginn þar sem gítar var við hönd, spilagaldrar og læti. dóri hilmis lét meir að segja sjá sig.
datt svo í fermingu í dag. danni frændi orðinn fullorðinn! sá um myndasýningu fyrir liðið. náði að sjálfsögðu að troða mér á aðra hvora mynd! en þetta var nett, fín veisla.
svo var það all-star dýnubolti í langó. tókum tvær varíasjonir á etta: flest mörk skoruð og oftst út af. útslitin detta inn á morgun.
splæsti á Michigan disk Sufjan Stevens. gaurinn ætlar sem sé að gera disk fyrir hvert fylki í usa. kominn með tvo þrælgóða. vorum að rífast hve mörg fylkin eru svo. ég tippa á 52 kvikindi, þið megið alveg staðfesta það.
posted by 4fl at 10:51 e.h.
|