laugardagur, janúar 13, 2007
já.
rétt upp hönd sem lenti í árekstri í gær. hefði átt að fara meira varlega eftir að hafa heyrt spár um 80 árekstra í höfuðborginni. svona er etta. sem betur fer klessti ég á afar vingjarnlega konu sem sýndist alla veganna ekkert rosa pirruð. en svona er etta. engin meiðsl á fólki en örugglega einhver skildingur sem fer í viðgerð.
ekki nógu ánægður með gunna að hafa ungir v gamlir tvo daga í röð. gerir hlaupin mín leiðinlegri en ella. jr fékk reyndar mætingu í dag en var frekar lonely í gær.
bústaður um helgina. komin með fullan harðan disk af einhverju kaffi. lpool með 3 stig í dag - afar sterkt.
systa komin í ökutíma - veit ekki með það. og sem sýnir að tíminn líður náttúrulega alltof hratt.
heyrumst.
posted by 4fl at 4:15 e.h.
miðvikudagur, janúar 10, 2007
jebba.
tók forfallasund tíma í dag. bara flottur sundkennari! en mætti í 66° úlpunni með allar græjur - og svo er náttúrulega kominn þessi massa innilaug sem alltaf er kennt í. ég hélt bara að þetta fjeldsted og geiri á bakkanum í gamla kraftgallanum. nei nei, svitnaði eins og ljónið - ekki nógu töff.
"gott kaffi" upp í langó. eysteinn dróg mig í ruglið!
headlines hjá leno í gær voru svaðalegar. eru yfirleitt góðar en þarna hrökk út úr mér ... gulrótin sem ég var að kjamsa á.
posted by 4fl at 2:54 e.h.
þriðjudagur, janúar 09, 2007
húa.
píndi egil í þvílíkann stress-gym-tíma áðan. hlaup, lappir og pottur á klukk. teygt í sturtu og svindlað á maganum! og nýja fullham peysan passaði á mig eins og ég veit ekki hvað.
eigum við eitthvað að tala um leik nr.2 hjá Lpool og Arsenal?
mæli hér hiklaust me little miss sunshine. og held að ég smelli mér á soundtrackið á morgun ef guðrún gefur grænt.
taglið alveg að detta inn.
posted by 4fl at 10:27 e.h.
jev.
skellltum okkur til grindavíkur á fremur glæsilegri bifreið sem ég fékk ekki að taka í :-( stoppuðum að sjálfsögðu á essó í hafnó í nesti - náði ekki að hemja magga og fékk hann sér beikon ostapullu með kartöflusalati (það er frekar óhollt sko). alla veganna, við fengum að sjá baldur troða og gumma magg hamast í turninum hjá grindavík (sem b.t.w. notar hárband í eðlilegri stærð utan um byssurnar - það er alvöru). þannig að við fórum tiltölulega sáttir heim þrátt fyrir 25 stiga sigur grindó.
ja, missti reyndar af "hetjum", þar sem ég brunaði upp í sveit á æfingu í egilshöllinni. og yes, frekar lítið hlaup á mér í kvöld. var bara nett mikið involved miðað við fyrri störf síðustu vikur.
erum við ekkert að grínast við kuldann úti í dag.
magga stína að syngja megas kallinn er búinn að vera í bílnum undanfarið. frekar sáttur við diskinn. ferðasagan er náttúrulega klikkuð.
foreldranámskeið á morgun. maður skrópar ekki í svoleiðis.
eymi hver!
posted by 4fl at 12:37 f.h.
mánudagur, janúar 08, 2007
jebba.
er að pína börnin með gömlum barnalögum. jón spæjó, súperman og fleiri snilldar lög. þau segjast ekki vera að fíla það en ég er ekki að kaupa það. ég skemmti mér samt manna best!
á víst að vera massa kalt úti þessa vikuna. það er fínt, enda verður kiddi settur í o.t. alla vikuna. búinn að hafa það frekar náðugt síðan 19.des!!
sá the wind that shakes the barley í gær. hún slapp en ekki cannes official selection ´06. bara svona 6 myndir sem ég væri til í að sjá í bíó. svaðalegt.
bumban að keppa í kvöld á móti grindavík. spurning um að mar láti sjá sig enda ekki oft sem mar sér bo í action þessa daganna. í b-ball action that is.
posted by 4fl at 2:23 e.h.
sunnudagur, janúar 07, 2007
hæja.
haldiði að kallinn sé ekki kominn með 4 grip á hreint í gítarspili. já allt að koma. farinn að syngja með fyrri partinum í soal meets body og allt.
og er líka búinn að læra að gera eina týpu af bindishnút. jamm tók bara öll bindin mín í sundur í gær, veit að það var frekar djarft af mér en ég veit ekki hvaða dugnaður er að koma yfir mig, sbr. þetta og gítarinn. hvað næst?
matur hjá helgu frænku í gær. hefð að það sé fondú á þrettándanum. það er líka frekar gaman þegar maður þarf að vesenast smá með matinn.
er ekki alveg að nenna að taka niður allt jóladótið en það er víst komin tími á það.
veit ekki með liverpool leikinn í gær. so miklu betri og að fá á okkur þessi leiðinda mörk var ekki nógu spes. var næstum búinn að lemja benna frænda, sem er afar mikill arsenal maður. en tökum þá bara í deildinni.
laters.
posted by 4fl at 10:56 f.h.
|