sunnudagur, september 17, 2006
jev.
players í dag. ekki nógu ánægður með mína menn. en var aftur á móti fáránlega ánægður með borgarann sem ég fékk mér, eins með dílinn hjá magga lú.
ammæli hjá frænku áðan. 6 ára skæruliði nýbyrjuð í skóla. Þannig að við gáfum henni náttúrulega góða bók, glósubók og flottann blýant. ekkert brats drasl! mín líka svona ánægð en þegar hún var spurð 3 mínútum seinna þá var hún alveg blankó og sagði ekvað allt annað. frekar fyndið.
lítið annað talað um en þjálfaramálin hjá þrótti. hlýtur að detta inn á morgun.
proposition á morgun. eða hvað? h.bergur - mail me man!
posted by 4fl at 10:23 e.h.
heyja.
býst við að þið hafið ekki skellt ykkur í garðabæinn í gær að sjá mig spila með grifflurnar. það hefði samt eiginlega verið eina góða ástæðan því við vorum frekar slakir. en skömminni skárra að ná stigi heldur en að tapa síðasta leiknum.
var u.þ.b.korteri of seinn í tvær tæklingar við kanann í stjörnunni. hann var ekki sáttur við mig. "hey dude,how often are you going to kick me man"? ég panikkaði náttúrulega og kom ekki með "burn" comment tilbaka.
alla veganna, lokahófið var svo í gær. eysteinn m.v.p. - hallur skemmtilegastur og rabbi efnilegastur. og haldiði að kjappinn hafi ekki fengið skjöld fyrir 200 leiki með mfl. (ah, hallur enn í 100+). en ég var ekki ánægður með hvernig ég höndlaði sviðswalkið. er greinilega ekki enn búinn að mastara það - var bara rauður og með aulabros! tónlistin mín fékk náttúrulega góðar viðtökur og ærðust sumir hreinlega á dansgólfinu. og sumir gripu líka ekki suma eftir eina sveifluna!
þurftum svo að draga hall niður á óliver og í vöffluna. eysteinn og aldís tóku reyndar bara pulluna - skil ekki svoleiðis fólk.
posted by 4fl at 10:12 e.h.
|