föstudagur, febrúar 10, 2006
já.
ferlega aktívur í skrifum! sleppi afsökunum í þetta skiptið.
annars ferlega nett að það sé kominn föstudagur. klárlega make your own pizza og idol í kvöld.
tvær vikur í pétursborg. er alveg að detta á 66° norður úlpu á mikinn pening. samt einhverjir að fá mig af því :-(
duttum á brokeback um síðustu helgi. eysteinn dró okkur! bara nokkuð góð. þá á mar eftir hinar fjórar stórmyndirnar. allar um fimm tímar að lengd! alveg bannað að taka 90 mín á etta eins og denn.
ekki búinn að kaupa mér disk í 3 vikur. ótrúlegt.
excel skjalið rúllar vel. samt ótrúlegt hvað menn geta orðið æstir út af því. tveir nýir menn teknir inn í skjalið.
tók gott snapp á æfingu í gær. þarf svo sem ekkert að lýsa því nánar.
leikur v víking á morgun. kl.5 í egilshöll. alveg spurning um að fleiri fari að láta sjá sig. get alla veganna sagt að það kemst ekki einn víkingur upp vinstri vænginn á morgun!
góða helgi svo
posted by 4fl at 1:21 e.h.
|