laugardagur, október 14, 2006
já.
það var rosalegt áðan á 4.flokks æfing. Við erum að tala um að gæs skellti sér bara í lágflug og flaug beint á einn boltann sem var verið að nota í reit. ég er ekki ljúga. þetta var bull. veit ekki hvað greyið gæsinn var að spá - var örugglega gæsinn sem ég tæklaði um árið.
annars ekki nógu spes veður þessa daganna. og bara ekkert af laufum út um allt.
eysteinn á rjúpu. var ekki boðaður. hélt að ég myndi ekki meika gönguna upp á fjallið. hvað er það. myndi ekki blása úr nös! hlýt að fá að koma með næst.
haldiði að ég hafi ekki unnið tvo miða á jackass í gær. jamm - sendi ekvað 1900 skeyti inn í fyrsta skipti ever og bamm, var númer 9 í röðinni og vann stöffið. get eiginlega ekki beðið eftir að sjá essa vitleysu. annars eru svona 5 myndir sem ég væri til að sjá í bíó - góður bíómánuður!
jæja, bústaður. og menn klárir í madrassball á morgun!
hafið það gott.
posted by 4fl at 3:48 e.h.
fimmtudagur, október 12, 2006
já. menn eru greinilega búnir að offa bloggið mitt :-(
verð að fara að koma með ekvað bitastætt!
ég og smalinn fórnuðum okkur á einhvern ógeðiskennarafund út í bæ í dag (okey ekki góð byrjun á bitastæðu bloggi) - alla veganna, þurftum að dröslast upp í seljaskóla. tók okkur viku að finna hann. og viti menn, bitrar kennslukonur mættar einnig! vorum lítið að leggja orð í belg, en fengum líka þessar rosalega góðu kleinur. okey, nú smelltu nokkrir á x-ið.
lily allen að gera gott mót þessa daganna. bekkurinn tekur það á sig.
er að safna gömlum andrés blöðum og garfield bókum í bekkjarbókasafnið mitt. hljótið að eiga ekvað fyrir kallinn!
rosalegt áðan í dýnubolta! vann náttúrulega bæði mótin, en var svo illa sakaður um hindrun á eyma. það ætlaði allt að sjóða upp úr en menn sáu að sér. og ég er í lagi. menn voru reyndar soldið hasiteraðir eftir þetta atvik. eysteinn kom á óvart og sakaði menn um fix (gerir það soldið oft þegar hann er neðarlega). en samt good times.
my name is earl fantaþáttur. er orðinn fan. nú verð ég að fara að læra að dónlóda einhverju kaffi. gengur ekki lengur.
sá búbbana áðan. veit ekki alveg með þá. svo kom hemmi bara hress á því. hann sleppur svo sem. kem samt ekki með þér í sjónvarpssalinn sóley.
annars bara föstudagur. later.
posted by 4fl at 10:54 e.h.
þriðjudagur, október 10, 2006
jev.
gleymdi að minnast á öruggan sigur í mini-golf mótinu á laugardaginn. guðrún, hilda og eysteinn áttu ekki breik!
fórum á hestbak með fjórða um daginn - og nú hugsa ég ekki um annað en að fara aftur. ég var í ruglinu, Clint hefði verið stoltur af mér.
menn að fara á rjúpur um helgina. ólíklegustu menn eru að fara á shooting námskeið. ekki sáttur að hafa ekki fengið invite með :-( yrði rosalegur með rifil.
er ekki að læra á skeiðarann á nýja nike úrinu mínu. ekki nógu sáttur, enda ekki ódýra týpan! en lúkkar vel.
gamli diskurinn hans brendans er í spilaranum. alveg eins og sá nýji, alger snilld. er ekki búinn að splæsa í miða á airwaves. ótrúlegt. sjáum samt til!
posted by 4fl at 9:50 f.h.
Já.
ekki duglegasti bloggarinn á landinu! er enn að safna dósum til að eiga fyrir euroreikningnum eftir london!
annars bara fjör. dróg bjarka á zidane um daginn. fólk var næstum farið út í hléi en hvernig er ekki hægt að fíla 90 mín af kallinum! fórum svo á Börn í gær. djöfuls snilldar mynd er það. algjört möst see. svo dettur Mýrinn inn fljótlega. Kláraði bókina um helgina.
tókum góðan bústað um helgina. þar fór fram massa leti, fyrir utan einn góðan göngutúr til að friða samviskuna.
var samt bestur í dýnubolta þrátt fyrir chillið. kiddi var tæpur á að vera boðaður aftur! eymi hefur enn ekki þorað að láta sjá sig. og hróðmarsson átti góða innkomu.
gott ísland. ekki nógu gott á laugardaginn var. en hljótum að massa etta á morgun. læt alla veganna sjá mig upp í stúku.
posted by 4fl at 9:41 f.h.
|