þriðjudagur, ágúst 22, 2006
jamm.
skólinn formlega byrjaður. hitti nýja bekkinn minn í morgun. afar efnilegir krakkar. líst bara vel á etta.
gummi var ekki í pulsunni í gær. fékk mér þar af leiðandi bara eina! en hún var góð. sem er ekki hægt að segja um nýju myndina hans Night! er í aðdáendaklúbbnun hans en þessi mynd var ekki að gera nógu gott mót. eða hvað.
brúðkaupið hjá magga og guðbjörgu var síðasta laug. jesús hvað var gaman. það gersamlega small allt saman. gummi rúllaði náttúrulega veislustjórninni upp með vinstri. held að ég taki west side crewið formlega í sátt eftir kvöldið.
tók ræðu með halla. held að hún hafi sloppið. hallur var bara kominn í að tvista við ræðuna og læti. ég lét duga að lesa kaffið upp!
eldri voru teknir í bakaríið í gær. djöfull vorum við lélegir. tók okkur korter að átta okkur á að það væri spil! alli spilaði svo frekar leiðinlegan bolta. og eysteinn hékk bara frammi! ég vil re-match!
ok bjössi, annað "glænýtt" - get off með dandy. ertað grínast hvað þetta er svalt lag.
tók ekki einn leiki um helgina í enska. léleg byrjun. spurnig með liverpool í kvöld. og af hverju er ekki long sleeve selt á íslandi?
tók 10 km og rúllaði þeim upp á laugardaginn. já, lét ekki einn maur vinna mig. en tengdarpabbi laumaði sér framúr í lokin. frekar lélegt.
ýrr hlýtur svo að redda mér miða á sufjan stevens - ég meina, fólk sem vinnur á midi.is hlýtur að geta forritað einn auka miða á kallinn!
eymi að fara í próf á morgun. ekki heyrst orð frá agli í búlgaríu. og kiddi er með allt niður um sig! 3 leikir eftir fjórða og svo haustchill.
fjalli tók næstum ingva á etta á móti ía. spurði samt ekki við hverja hann var að keppa eða hvernig staðan væri. þá var þetta nú ekki mikið högg!
segjum þetta gott svo beisi verður ekki með kjaft.
posted by 4fl at 2:45 e.h.
|