laugardagur, mars 26, 2005
hey.
ísland - króatía byrjaður. held við eigum eftir að standa okkur. erum alla veganna búnir að vera hættulegri fyrstu tvær. og heiðar búinn að taka eina bufftæklingu.
já fisher in the house. læt aðra bara um að dæma etta mál. samt ósáttur við að kallinn hafi rakað sig.
búinn að vera ferlega duglegur í dag. datt í klassann í morgun, tvo á tvo á laugavangi í hádeginu í fúss og svo þrír á þrjá í langholtsskóla í körfu. og var meir að segja í sigurliðinu í körfunni. reyndar vorum við að keppa á móti ella, halla og bjössa þannig að það reyndi ekki mikið á kraftana. fékk samt ekki að troða :-(
posted by 4fl at 5:00 e.h.
fimmtudagur, mars 24, 2005
jebba.
auli að trufla ekki einu sinni manninn þegar hann stökk upp :-( töpuðum sem sé 2-1 á móti fram. ferlega svekkjandi. tek gersamlega á mig annað markið þeirra, og þar með eiginlega þrjú stigin. hefði svo verið ljúft hefði sævar sett hann í lokinn. en svona er etta. halli hefði getað fengið 3 rauð. en dómarinn greinilega í góðu páskaskapi, þó svo að hann dæmdi frekar illa yfir höfuð. það afsakar samt ekki tapið. stúkan skemmtilega þétt setinn á framvelli. þó svo að nokkrir skrópuðu!
alla veganna.
man on fire 3 stjörnur. denzel bara ekkert svalur. live aquatic 3 stjörnur. bill klikkar eiginlega aldrei.
jack jonson - in between dreams 5 stjörnur. dónlóda breakdown strax. moby - hotel 2 stjörnur. ekkert sem heillar neitt sérstaklega.
skattaframtalið. stuð stuð. bara stuð. hendi í ykkur fimmara ef þið klárið það fyrir strákinn.
planið er bíltúr upp í sveit á morgun. verst að pústið og dempararnir séu farnir af golfinum. erum að vinna í lánsbíl!
posted by 4fl at 8:03 e.h.
miðvikudagur, mars 23, 2005
Komiði sæl.
haldiði að ég hafi ekki tapað fyrir japananum í badminton í gær. maðurinn er ekki búinn að hreyfa sig í ár vann manninn sem tekur átta hringi and then some í cooper. skil etta ekki. reyndar fékk halli einhvern baneitraðann copra spaða til að nota. það er sama, þetta er SKANDALL.
Fram á morgun. stemmari að spila á nýja gervigrasinu þeirra. hefst kl.12.00. vænti þess að menn taki daginn snemma og kíki á okkur.
það er bara búið að signa gaurinn. já kíkið á fóbolti.net og lesið um etta kaffi. Josef heitir kauði. talar ekki orð í ensku. né íslensku!! nýtist mér sem sé lítið í þjálfun, en kíkjum á það.
sáum SAW í gær. veit ekki með þá mynd. mar var bara orðinn pirraður í lokinn. bókstaflega reiður.
alla veganna, síðasta æfing fyrir páska hjá maurunum. samloka og 3bíó á eftir. later.
posted by 4fl at 12:20 e.h.
mánudagur, mars 21, 2005
hellú.
svaf til 10.38. já það hefur ekki gerst lengi gott fólk. bara helvíti næs. guðrún klikkaði samt á kókó pöffsinu í rúmið.
vorum að enda við einhvern innanmeistaraflokksleik. mitt lið tók etta kaffi 4-1, gersamlega án minnar hjápar. var mest að bruna upp kantinn - fá hann - og leggjann svo á andstæðingana. þversendingar.is bæti mig á morgun.
enn fúll út í kidda. maðurinn er ekki enn búinn að taka ákveðið mál á sig og biðjast fyrirgefningar. hann fær sko ekki að dæma í bráð.
við erum að tala um badminton í fyrramálið. já, eftir tveggja og hálfs árs bið, er rematch milli langholts-og vogaskólameistarans Haralds Bergs og mannsins sem átti að fá þann titil 21.desember 1989 - en tapaði í oddalotu 11-9. leikurinn fer fram í tbr húsum kl.10.45 fyrir áhugasama.
posted by 4fl at 9:03 e.h.
sunnudagur, mars 20, 2005
jebba.
ég kom á óvart og var þreyttasti og leiðinlegasti gaurinn í get-to-gether-inu hjá harald í gær. sofnaði næstum einu sinni. fjalli þurfti að banka í mig! annars nett. arnarson var hress - hjalti með pólskar hetjusögur - addi eitthvað að reyna að halda því fram að Fram falli ekki í sumar (þetta kemur örugglega í bakið á mér). hver veit hvar bo endaði. en ég segi að maggi hafi endað á hverfis.
svefnsófi til sölu, þess vegna gefins. flottur - svartur - smekklegur - auðveldur í flutningi - góður fyrir bakið - nefndu það. heyriði í mér - 869-8228.
eru gallabuxur off í fermingarmessuna?
klárlega the Life Aquatic í kvöld. og hvað ætliði að gera í þessari mynd?
posted by 4fl at 12:10 e.h.
|