fimmtudagur, október 09, 2008
ble.
litli fékk ælupestina í fyrsta skipti í gær. og hann tók "in your face" á etta við pabba sinn. sem betur fer er ég ekki eins og bróðir minn, lifi svona alveg af. bara verst með rúmdýnuna :-/
tvö dýnubolta session búinn - svona misgóð mæting hjá mönnum. held samt að ég sé nánast búinn að heyra í öllum í klíkunni. bannað að vera fúll ef þið hafið ekki fengið sms, það kemur. alla veganna - það var gríðarlega mikil spenna í gær í botnbaráttunni, sérstaklega þar sem að nýja powerade reglan hefur tekið gildi. þ.e. neðstur kemur með powerade til að spila upp á næst. ég smelli þessu bara hér upp, neðstur verður bara að taka því og gera betur næst!
-samanlög stig 8.okt:
1.sæti: Elli 49 (skandall). 2.sæti: Rabbi 48. 3.sæti: Ingvi 45 (líka mest flair í gær). 4.sæti: Óskar 33 (hefur valdið vonbrigðum í ár). 5.sæti: Eysteinn 30. 6-7.sæti: Kiddi 27 (líka mest pirraður í gær). 6-7.sæti: Egill B 27. 8.sæti: Hákon 22 (það er bara þannig).
Annars bara líf og fjör.
posted by 4fl at 2:24 e.h.
|