föstudagur, nóvember 10, 2006
hí.
náði að væla mig inn í rauðvínsklúbbinn - þótt ég myndi eflaust segja þennan drykk þann versta í heimi - dregið á eftir.
dreg tilbaka þetta með leiknisvöllinn. hann var þakinn snjó upp á ökla á miðvikudaginn og það var gömul þvottavél í klefanum okkar. aftur á móti var þetta risatjald komið og deildarbikarinn í beinni. hvenær á annars að splæsa í nýtt hús fyrir dodda?
pant vera að bera út moggann í morgun!
enn og aftur dobblaður í rómantíska mynd í gær. the lake house varð fyrir valinu. merkilegt hvað guðrún er góð að dobbla! en ég er samt söndru maður - get alveg viðurkennt það. en drekk samt ekki coke light reglulega!
hallur og eymi klárir í dómgæslu í dag. djöfull er ég ánægður með þá.
maurarnir soldið að væla út af veðrinu. vilja vera inni í frímó og svona. smalinn skilur þetta náttúrulega ekki enda svona dagar daglegt brauð á blöndósi.
fimleikar í kvöld með fjórða. verð klárlega með. svo borat - go movie see.
g.helgi.
posted by 4fl at 9:08 f.h.
miðvikudagur, nóvember 08, 2006
hæ
mér var ekki boðið að vera með í rauðvínshappdrætti í skólanum. ég er ekki sáttur. þó maður drekkur ekki þennan fjanda má alveg spyrja mann! ekki eins og dadda myndi neita flösku!
allir búnir að sjá borat - maður getur ekki tekið þátt í samtali án þess að menn minnist á hana.
æfing upp á leiknisvelli á eftir. fórum reyndar fyrir viku líka en ég gleymdi að minnast á það. okey doddi, ágætis völlur og svona. búningsklefarnir eins og þeir eru. en völlurinn er bara of langt frá 104 :-(
farinn að hlusta á lag nr.7 á 9. það er víst svaðalegt.
posted by 4fl at 4:27 e.h.
Sæl.
Kjappinn kominn frá london. klassa helgi. þrátt fyrir good intentions og slakan fjárhag tókst mér að eyða smá úti. ég meina, hver fer í nike town og kaupir ekki neitt. það er bara ekki hægt. en ekkert svaka samt.
Annars var þetta bara nett. bjöggi var náttúrulega hinn rólegasti og bjarki geymdi unglingataktana heima.
veit ekki af hverju ég kom með þá reglu að hver fékk eitt kvöld til að velja matsölustað, sem þýddi að ég fór á sushi stað :-( á svona rúlludóti. en náði með erfiðismunum að kroppa hrísgrjón af sumum réttunum. en var samt að lúkka.
fórum á tvo leiki. heiðar plöggaði okkur í spaðastúkuna á fullham v eerton. fengum gúff fyrir leik, í hálfleik og eftir leik. frekar sweet. svo var það west ham v arsenal í slömminu á sunnudeginum. flottur völlur en ansi vafasamt hverfi. var audda í west ham treyjunni minni og lét eins og versta bulla.
vorum ekki nógu góðir túristar í ferðinni - feðgarnir voru svo æstir í búðunum. náðum að sjá scarlett jóhannson á rauða dreglinum - og svo justin hawksins í gítarbúð.
hótelið var nett, með fínum sjálfsölum :-) fórum svona sextán sinnum á starbucks. svo sá ég náttúrulega um yfirfararstjórn og lestarmál.
good times - set myndir inn fljótlega.
posted by 4fl at 4:07 e.h.
|