fimmtudagur, janúar 12, 2006
hæ.
fékk ekki "farinn til útlanda í langan tíma" kveðju köku hjá magga í gær. en hann er alla veganna farinn til köben.
afar spennandi í gangi inni í eysteins stofu - unnið með fuglahljóð! og það verður farið í fuglaspilið í hlynsölum á laugardagskvöldið.
hljóp inni í gær. það var bara sweet. tók svo hrikalega á því í bekknum. spurning hvort ég verði með í kraftlyftingarkeppninni í MS í næstu viku.
þorði ekki aftur á Hostel - og nú reyndi óskar að dobbla mig.
stutt í helgina. ánægður með það. það hringdu samt 3 þjálfarar í mig í gær og voru margir leikir planaðir. já, nú fær kiddi sko að dæma.
opnað í bláfjöllum. en ég læt nú ekki sjá mig fyrr en stólarnir opna. ekki nógu töff að vera í diskalyftunum.
annars bara nokkuð ferskur. meir að segja bolti í kvöld. aju
posted by 4fl at 9:13 f.h.
þriðjudagur, janúar 10, 2006
heyja.
maggi og halli voru ferlega slakir í "tveir og tveir" áðan - meira slakir en venjulega. en tapaði svo enn og aftur á æfingu áðan! 0 - 4 record hefur bara ekki sést áður.
guffi og elli í mjóddinni næsta sumar. líst bara vel á það hjá þeim. og bara ansi flair búningar.
kr að fara til spánar í tvær vikur. hvað er það! hagfræðin hjá simma hefur ekki gott af því - tekur bara með sér bækurnar. einmitt. og maggi út á fimmtudag. baldur út á föstudag. hvað er þetta. allir að fara af klakanum. ég reyndar með þrjár ferðir planaðar. ekki slæmt.
posted by 4fl at 10:03 e.h.
mánudagur, janúar 09, 2006
jó.
svaðalega er byrjunin töff á "walk the line" - á laginu þ.e.a.s.
ætlar engin að finna út hvað lagið heitir í þessari blessuðu auglýsingu?
endurfundir útskriftarárgangs ´95 úr langó eru um næstu helgi. jamm - menn eru eitthvað að klikka á að mæta - harald ekvað að vesenast í tókíó, baldur að fara til kína og veit ekki með begga. en kennarinn mætir hress! "og hvað með þig ingvi! hvað ert þú að bauka þessa daganna"?
posted by 4fl at 9:43 f.h.
sunnudagur, janúar 08, 2006
jebba.
helgarslútt. sit sveittur við að færa inn einkunnir. fíla það þegar því er lokið!
fín helgi annars. nema hvað við áttum ekki góðan dag í fjórða! unnum ekki leik á ísl. mótinu innanhúss. eitthvað annað en 2.fl sem vann sinn riðil. öss. held meir að segja að egill hafi skorað. eymundur sveinn lét sig vanta í allan dag í höllina og hlýtur það að teljast frekar lame!
eysteinn er beðinn um að skila upphífingarblaðinu til hlyns.
gúffaði hjört, hreindýr og gæs á föstudagskveldið (eftir að hafa klárað hálfa pedsu)! bara ansi gott stöff.
skellti mér á bikarleik í körfunni á laug. já kr-b v grindavík. einhver svaðaleg hetja úr bandaríska háskólaboltanum var fenginn til kr fyrir leikinn. hann setti ekki nema 50 stig. bo líka nettur og hlammaði inn einhverjum tíu snuddum.
Það hafa 6 vinnumenn komið við heima að stússast ekvað í sambandi við lekann góða. sjóváalmennargaur, annar tjónagaur, símagaur, gólfagaur, gaur sem á þurrkaravél og svo píparinn. gangurinn minn hlýtur að enda í veggfóðri með völu þegar þetta er búið.
þorði ekki á hostel á föstudagskvöldið. þori alveg að viðurkenna það. held að hún sé too much. hefur mar virkilega gamað að sjá fólk pyntað eins og pöddur? en íslendingurinn er víst senuþjófur.
tónleikarnir í gær maður. uss uss uss. mugison klárlega flottastur. eða damian. hjálmar voru líka flottir. svo kom gunni og co. með tvö flott lög. hefði viljað sjá tvö lög með sigur rós. hefði líkað viljað vera í stúkunni.
laugar á morgun. nei, gervigrasið takk fyrir.
heyrumst.
posted by 4fl at 10:48 e.h.
|