föstudagur, maí 05, 2006
júv.
hef verið duglegur að láta menn fá brenndan brendan (ekki stafsetningarvilla). töff töff.
vil hvetja menn að taka myndina Waiting... eruði að grínast á leiknum sem spilaður er í þeirri mynd! spurning hvort við setjum hann on í langó! eða mfl. spáum í því.
spurning hvort það sé litli hringurinn í dag, hlaupa nýju skóna til á grasinu, eða vera með á fjórða flokks æfingu. pæling.
svo er súddara mátun í dag. ánægður með það. sá eini sem vælir er sindri. maður myndi halda að hann yrði sáttur að skipta aðeins út retro lörfunum sínum!
og krúsarinn í kvöld. klárlega.
góða helgi. sjáumst í eyjum á morgun.
posted by 4fl at 1:19 e.h.
þriðjudagur, maí 02, 2006
heyja.
frekar lélegur að blogga undanfarið. er ekki einu sinni með afsökun. jú, nema kannski að ég hef verið önnum kafinn við að uppfæra nýju fitness bókina mína! já nú stend ég mig!!!!
líka komnir með nýtt plan í laugum. ekkert smá nett að fá smá tvist í etta. dips komið og allt.
allt að gerast. Ási orðinn pabbi. hann var nú samt eiginlega pabbi minn í erie, en nú for real! og spaðinn þokkalega flottur!
fórum á inside man. spike lee joint. bara þokkaleg. denzel klikkar eiginlegur heldur ekki.
pabbi heldur ekki vatni yfir Liverpool - West Ham í bikarnum 13.maí. held reyndar að ég verði á Vík þá. hann var meir að segja með einhverjar yfirlýsingar um að fara út! held að dadda hafi alveg strikað á það.
Brendan Bensson er málið. þeir sem ekki dánlóda the pledge með kallinum eru annað hvort sauðir eða kunna ekki að dánlóda. brósi gaf mér líka örkina hans nóa með cocorosie. soldið grillað en samt nett.
fékk sinadrátt dauðans í gær. og ekkert neitt eðlilegan. hélt að ég myndi æla af sársauka. en ég fiffaði etta. þurfti reyndar að fleygja mér í gólfið og festa mig í ansi asnalegri stellingu í tíu mínútur. kennir manni kannski að teygja betur.
later
posted by 4fl at 4:13 e.h.
|