stress.is |
laugardagur, nóvember 30, 2002 jæja. hvað segið þið þá. helgin komin í öllu sínu veldi. byrjar þó ekkert rosalega vel - jú kannski svei mér. æfing áðan. skoti í heimsókn hjá okkur. alger súla. sá nú ekkert mikið af honum en kíkjum betur á hann á morgun. sem sagt tribble trainings um helgina. endum svo á leik v kr á sunnudaginn. nett.posted by 4fl at 12:45 f.h. fimmtudagur, nóvember 28, 2002 hey. má víst ekki koma með fleiri fótboltasögur í dag. ok hvar skal byrja. ó já. maggi var að dissa mig - segja að ég læri aldrei. það er reyndar ekki alveg satt. ég læri bara þegar aðrir sofa og verða þeir þá ekki varir við lærdóminn! en annars er stutt í jólachill - það verður ekkert smá ljúft. var að kaupa piparkökur - það kom stelpa að selja og bjargaði kvöldinu.posted by 4fl at 9:02 e.h. jó. bara fjallað um frænda á trottur.is - nettur. svo ætlar bjögga að taka þriðju vaktina á dragballi í langholtsskóla í stað þess að horfa á liverpool og taka upp "coaches game" á tennisvellinum. ekki nettur. hansi og jensi og bjöggi bjölluðu í mig af nba leik í gær. boston - síkakó. nettir. svo er ég ferlega nettur líka! jæja best að fara að segja eyma að það sé æfing í fimmta. svakalegt að þurfa að boða aðstoðarþjálfarann á hverja æfingu. ef ykkur dettur einhverja aðra aðferð í hug - eins og til dæmis að leggja á minnið hvenær æfingar eru - látið mig þá vita. p.s. næst er 5.flokkur í fimleikum laugardaginn 7.des. ok sir.posted by 4fl at 2:38 e.h. miðvikudagur, nóvember 27, 2002 72 strákar í fimmta í gær. ég bara spyr ykkur; er það ekki of mikið. ég meina. kom on. og hvað gerist ef þeir verða fleiri. tek etta samt alveg á mig. þetta hlýtur að segja eitthvað um þjálfarana, þótt ég sé ekkert að monta mig. mér finnst samt ansi gaman að segja; "TOPPIÐ ETTA"posted by 4fl at 3:26 e.h. vitiði hvað ég sendi mörg sms í síðasta mánuði????????? DÍSES KRÆST. get bara ekki sagt ykkur það. ok. það eru fleiri skipti en maggi þurfti að vera á bekknum í denn og það eru færri skipti en ég missti boltann á miðjunni á æfingum á síðasta ári. giskið nú.posted by 4fl at 3:24 e.h. þriðjudagur, nóvember 26, 2002 jo. real ekki að standa sig, eins gott að þeir setji hann í lokinn. samt búinn að læra ný trix. "sárið" á nefinu á mér er að minnka - jes - en það er samt búið að bögga mig ansi mikið á því.posted by 4fl at 11:33 e.h. hey - var í geislavirkum pulsum hjá eysteini (þ.e. pulsur úr örbylgjuofni) - smökkuðust furðuvel. skúffukakan var samt betri.posted by 4fl at 12:44 e.h. jó. kiddi/red/tal/buff veikur - kemur á óvar. er samt búinn að setja viðtal við hann sem ég og eysteinn (og bjöggi) gerðum. ekki bestu gæðin en sleppa. á að birtast hér til vinstri ef allt fer að óskum.posted by 4fl at 9:55 f.h. mánudagur, nóvember 25, 2002 jójó. tek etta á mig. helgin var nett. sit hér enn og aftur og horfi á 100 mörk skoruð. lendum í öðru sæti í íslandsmótinu innanhús, kallinn bara nettur, setti 2 og annað á móti kr. hallur setti samt 3 í skvass skónum sínum. hvað er það.posted by 4fl at 11:13 e.h. |