sunnudagur, janúar 31, 2010
jó.
laglegt ísland. náðum bronsinu í dag. eigum við að ræða hvað ég væri til í að kíkja í smá handbolta. skal ná að bóka ms í vikunni og boða einhverjar hetjur.
loftnetið okkar er í ruglinu þannig að við náum bara stöð 1 þessa daganna. fyrir okkur sjónvarpssjúklingana er þetta hrikalegt.
dæmi: í gær á gufunni voru tvær klassa myndir. kíkti á imdb og kíkti hvað þær fá í einkunn! annapolis var með 5.0 og blood and chocolate (já hún heitir það) var með 5.2. ég bað hjössa um að skamma þá sem sjá um þetta upp í rúv en hefur greinilega gleymt því.
tommi annars hress með stundina okkar. ég er aftur á móti ekki alveg nógu hress með sidekickið í þættinum, sem er frekar pirrandi og hávær mús. held alla veganna að þetta sé mús.
posted by 4fl at 9:59 e.h.
|