miðvikudagur, september 26, 2007
jev.
óli var ekki að bjarga mér í gær eftir að hafa misst dollann svona hundrað sinnum fram hjá mér. hallur tekur svo á sig handklæðaklúður, ferlegt að þurfa að nota hárblásarann til að þurrka sér.
sóley skellti cornrows á kallinn í gær. fólk var soldið lengi að gúddera það í dag. og engin sagði að ég væri eins og leto í panic roo :-(
Það er að öllum líkindum Geilo um jólinn. það er svaðalegt. fæ aftur tækifæri í expert brekkunum eins og um árið.
h.ingi og b.sig ammæli í dag. bjarki hlýtur að senda köku með í skólann á morgun.
tommi eldhress. önnur tannsla að detta í hús. gúffar líka alls konar graut sem ég harðneita að smakka. mar meir að segja farinn að taka flugvélina á kallinn.
reyndi við skriðið í kílómetranum í lauginni áðan. náði næstum að klára nokkrar heilar ferðir. held ég þurfi að redda mér blöðkum, nike blöðkum naturlich.
posted by 4fl at 9:20 e.h.
sunnudagur, september 23, 2007
jebba.
kominn smá spenna hjá okkur í mfl. klárum etta næsta fös. einnig allt að gerast í landsbankadeildinni - ræðst líka um næstu helgi.
árgangamót niður í þrótti í gær. ekkert smá margar gamlar kempur mættu og tóku á því. 77 árgangurinn yngsti sem mátti taka þátt. sem þýðir að það eru tvö ár í að 79 árgangurinn mæti og taki gullið!
búinn að synda eins og ljónið síðustu daga þar sem að hnésbótin er búinn að vera að angra mig. nike sundgleraugun mín að klikka - fyllist alltaf af vatni á miðri leið. svo tók ca. áttræð kona fram úr mér í dag. ekki nógu gott.
afmæli hjá rúnari inga í dag. stemmari, en verst að maður þarf alltaf að hlaupa til keflavíkur til að ná kökunum hennar hildu af sér!
Their Satanic Majesties Request bara ekkert sýrð plata. smellti mér á hana og pink moon með Nick Drake. the stones bara í vatninu þegar þeir gerðu hana. she´s a rainbow snilld. sem og titillagið af hinni.
ekkert nýtt annars!
posted by 4fl at 9:39 e.h.
|