laugardagur, nóvember 03, 2007
Jamm og já.
Kallinum bara hent í speglun á hné í gærkveldi. Hálf átta félagi. alveg eðlilegur tími, en þau voru að redda mér feitt. annars hefði þetta verið í lok nóv. Núna verður maður nánast klár að tækla strákana 12.nóv þegar við byrjum í mfl.
verðum afar pró í vetur, æfum á morgnanna og í hádeginu. Til í það. Skólastjórinn kannski ekki til í það en við fiffum það.
Já, svæfing og læti í gær. En gekk vel. Er núna haltrandi og læt guðrúnu þjóna mér hægri vinstri. Hendi í mig fullt af töflum og er með löppina upp í loftið.
Tók aðra seríu af Extras í fyrradag. Þetta er bara fyndnasta drasl í heimi. Út á leigu núna til að taka þetta kaffi.
Man.Utd v Arsenal í dag. Ekki leiðinlegt.
Herrakvöld Þróttar næsta föstudag. Það er möst. Held að Baldur sé loksins búinn að ná sér eftir Herrakvöldið fyrir fimm árum, og láti sjá sig núna. Þetta verður flott kvöld.
Guðrún tók Tómas í smá klippingu. Ekki rólegasti viðskiptavinurinn enda er hann með topp eins og önnur Hara systirin!
100 barnalög í hús í dag takk. Tókum pílu pínu í gær en ekki í alveg nógu góðum gæðum. Svo er útvarpstöðin latibær vinsæl.
stal þessari svo. góð.
posted by 4fl at 7:58 f.h.
miðvikudagur, október 31, 2007
jev.
foreldraviðtöl í gangi. æ löv it. gengur samt vel.
vorum með grímuball í gær þar sem að við erum að detta í massa vetrarfrí. heppnaðist vel nema hvað ég réðst næstum á pedsusendil! eitthvert grey sem ruglaðist aðeins á tíma og stað. en reddaðist. ég var norn, frekar scary. fékk líka loksins að vera dj eftir öll þessi ár. gunni tynes einokaði alltaf þessa stöðu í denn. skar líka út grasker í gær - vakti lukku meðal mauranna.
er að skrópa enn og aftur með eysteini í rjúpu (ekki dúfu eins og ég sagði í gær). veit samt ekki hvernig hann á eftir að komast upp fjallið í þessu formi!
þriggja daga vetrarfrí coming up. ekki slæmt. hefði eiginlega átt að fara til útlanda. er reyndar að fara til útlanda um næstu helgi þannig að.
posted by 4fl at 10:53 f.h.
|