miðvikudagur, janúar 04, 2006
jó.
datt í gymmið í gær. það er ekki frásögum færandi nema hvað að allir sem eiga heima í reykjavík og nágrenni voru mættir að taka á því. ætlaði að taka vensluna á brettinu en meikaði það hreinlega ekki sökum fólksfjölda - þurfti því að fá stelpuflíspeysu en það reddaðist. var með semi góðan lista til að hlusta á. hefði samt getað sleppt að hlaupa - því leiðin frá þar sem ég lagði hefði dugað! ætlaði svo að hitta menn í pottinum á ákveðnum tíma en var svikinn :-(
alla veganna, æfingaleikur upp á skaga á eftir. vona að það séu bara nokkur vindstig undir esjunni.
menn mættir heim að brjóta upp gólfið og finna ekurn raka sem á að vera þar. helvíti hressandi.
fyrsti dagur í kennslu eftir frí í dag - menn svona misferskir. missti mig svo næstum í bolta í frímó. blotnaði bara ekkert.
fyrsti dagur guðrúnar í kennslu. jamm - hagaskóli mun njóta starfskrafta hennar í vetur. hvernig er það - var það ekki alltaf villingaskóli?
aju
posted by 4fl at 2:01 e.h.
þriðjudagur, janúar 03, 2006
jebba.
fyrsti formlegi leikurinn í Mattressball var í gær í íþróttahúsi langholtsskóla. verið er að ljúka við the official rulebook - en leikar fóru þannig í gær að kiddi var neðstur með mínus 45 stig - fólk ekkert sérlega hissa á því - fólk meira hissa á að eymi hafi náð að bjarga sér í lokin.
Haukur vann þetta naumt með mínus 27 stig. kallinn var bara traustur fyrir miðju!
tók óskar með vinstri í popppunkti. á þá bara eftir að taka actionary - og scrable, en hver fer annars í það!
man.utd v arsenal í kvöld. jafnvel fyrsta pedsa ársins!
posted by 4fl at 9:38 f.h.
mánudagur, janúar 02, 2006
hey.
alltaf gaman að fara yfir próf!!!
mun ekki skrifa eitt orð um leikinn á gamlársdag. nema að ég skoraði fyrsta (og flottasta) markið.
vá hvað ég er ekki að finna út hvað lag er í landsbankaauglýsingunni fyrir mitt kort. er búinn að setja fullt af fólki í vinnu við að plögga etta fyrir mig. og núna er dr.gunni (vonandi) kominn í málið.
dýnubolti á eftir. já gott fólk. það er nýjasta nýtt. verðið að prófa það.
later - orðinn seinn í fisk - djöfull er kominn tími að mar fái sér soleiðis. aju
posted by 4fl at 5:54 e.h.
sunnudagur, janúar 01, 2006
heyja.
Gleðilegt ár öllsömul. takk fyrir 2005. vonandi skemmtu allir sér í gær.
slysalaust hjá the sveinsons. voru líka bara með tveir nettar kökur og stjörnuljós.
setti persónulegt met í svefni í dag. stoltur af mér. trúi svo ekki að ég hafi tekið sama leiðinlega hlaupahringin okkar. en hafi gott af því.
later .is
posted by 4fl at 5:38 e.h.
|