fimmtudagur, nóvember 29, 2007
jí.
var ég búinn að segja hvað "the office" er mikil snilld!
skipti um dekk á drossíunni í gær. naturlich var tengdó fenginn í aðstoð. ég gerði meiri ógagn en gagn, var í því að týna skrúfum og svona.
buxur með brotum og bindi í langó á morgun. pressa á mér. ekki alveg nógu ánægður með fataskápinn at the mo.
ekki nema þrjú jólahlaðborð um helgina. merkilegt hvað allt dettur inn á sama tíma. perlan á sun og bamm, æfingaleikur kl.6. priceless!
posted by 4fl at 11:00 e.h.
þriðjudagur, nóvember 27, 2007
jev.
við erum að tala um að það er farið að dimma um klukkan þrjú. er það ekki of hart!
búinn að sjá að ég þarf að vinna í snerpunni eins og ljónið næstu vikurnar. vann ekki einvígi í gær í elstu 1v1 æfingu sem til er. reyndar var hallur og hjössi fáránlega dörtí eins og fyrri daginn.
sótti levi´s úlpuna mína í rennilásaaðgerð í gær. var búinn að vera þar síðan í maí. konon þar var ekki sátt en ég náði að sweet-talka hana.
Tommi slappur. ekki nógu skemmtilegt. kann ekki enn að snýta sér þannig að það frekar skrautlegt.
óskar dróg mig á jesse james á laugardaginn. ekkert svaka spennó en þokkalega töff.
jamm - mandarínur og jólajógúrt komið í hús. mar getur borðað endalaust af því dóti. hlýtur að vera skárra en margt annað.
það er komið dílemma með leikritið upp í skóla. kallinn þarf að plögga 7 nýjar persónur og koma þeim inn í the play. en ég redda því. kominn með góðar manneskjur með mér.
posted by 4fl at 5:35 e.h.
|