þriðjudagur, ágúst 14, 2007
jev.
held áfram að tala um lélegar bíómyndir og að ég sé ekki í hóp!
eigum að við að ræða hvað við vorum slakir síðustu fimmtán í gærkveldi, ja hérna. en nis samtökin hugsanlega með hitting fyrir leik á morgun. betur auglýst. annars er etta möst win - fólk hlýtur að láta sjá sig í dalinn.
tók aftur slaka mynd með snilldar leikara. Cage í Next. veit ekki með þá mynd. og kallinn kominn með 4 vafasamar í röð.
- nýja stofan mín upp í skóla svaðaleg. vantar bara sófa í kósý hornið. - Fjalli í landsliðshópnum fyrir vináttuleikinn á móti Kanada. og Danni cuz í 92 úrvali. Good stöff. - er alveg að detta á enska boltann - þarf bara smá push!
laters
posted by 4fl at 8:57 e.h.
sunnudagur, ágúst 12, 2007
jó.
óskar að fá íbúðina sína á miðvikudaginn. ég er ekki enn búinn að fá skýr skilaboð um hvað ég á að hafa yfirumsjón með í flutningunum! mæti alla veganna með píparanum í bryggjuna á morgun að sækja ekvað borð!
eins gott að svarti fat boy feðgapúðinn minn verði kominn til landsins á morgun. annars þarf ég að æsa mig, eða senda ömmu á liðið.
3 stig á fös. ef við erum að tala um 3 stig á mið þá fer maður bara að bóka etta kaffi. eða hvað.
posted by 4fl at 10:05 e.h.
jamm.
mun hér með aldrei fara aftur í golf nema akandi á golfbíl. mun heldur aldrei fara í golf með eyma fyrir man.utd leik! alla veganna, ekki nógu hresst þegar afgreiðslukonan í golfskálanum í verahvergi sagði að það væri mót í gangi! þannig að það var brunað í þorlákshöfn, þar sem þessi líka yndislegi golfbíll beið mín og eyma. kiddi og rabbi töldi svo að allt labbið á þeim hefði orsakað jafnteflið í mótinu.
annars nokkuð góð stemmning. reyndar tveir dagar í vinnuna! en það reddast nú.
gay pride í gær. létum sjá okkur niðrá laugarvegi. fannst gangan ekvað öðruvísi en í fyrra. en menn voru hressir. og palli enn og aftur á flottasta rædinu.
fisheye linsa kominn í hús frá new york. lítill múlasnabangsi líka kominn frá barcelona (laglegt sóley). kemur líka með þetta skemmtilega hljóð ef þú rekst í hann. er ánægðari með linsuna en tómas fílar asnann.
þar sem að systa komst að bíoferð okkar bræðranna get ég loksins commentað á transformers. óskar dróg mig sem sé, og var næstum búinn að taka gamla uppáhalds transformers leikfangið sitt með til að reyna að fá afslátt. við áttum sem sé ógrynni af þessi hressa dóti. er svo ekki að koma thundercats mynd næst?
fór með 315 myndir í framköllun í síðustu viku. allar frá 2006. er það ekki of mikið. segi samt að þær verði helmingi fleiri þetta árið með tilkomu sonarins.
ekkert slúður annars. jú, harald fékk sekt fyrir 0 heimsókn í síðustu viku!
posted by 4fl at 9:54 e.h.
|