fimmtudagur, apríl 27, 2006
jó.
þessi er líka góð!
róum okkur á costacurda. frekar svalt að vera 40 ára og í starting í undanúrslitum meistaradeildarinnar á móti barca. alla veganna, töff leikur en engin mörk! en nokkuð svaðalegur úrslitaleikur í uppsiglingu.
tókum afar góðan hring í gær. mar átti ekki mikið eftir. svo bolti í kvöld. öss, langt síðan maður hefur tekið alvöru leik. og spurning hvort hallirabbiegillsiggioghaukur mættiggi í legghlífum!
annars bara stemmari. sól og blíða. fólk gerir ekki annað en að horfa á nýju levi´s buxurnar mínar, enda eru þær í ruglinu. derhúfan er líka góð.
posted by 4fl at 12:13 e.h.
miðvikudagur, apríl 26, 2006
right.
komnir aftur á klakann. þokkalega temmileg ferð. gistum hjá siggu og funa fyrri nóttina og hjá sören seinni nóttina. ekki trúa nætursögunum hans halls!
átum vel en engin nennti með mér að hlaupa :-( tókum smá verslunarsprett en annars bara frekar chillaðir. maggi og guðbjörg mega spræk - íbúðin þeirra náttúrulega svaðaleg. þetta var good times eins og við segjum.
vorum svo náttúrulega teknir í tollinum. hallur frekar líklegur með glóðuraugað! og það var ekki að lúkka þegar ég ropaði út úr mér að ég vissi ekkert hvað væri í annarri töskunni minni, að ég væri bara að ferja hana fyrir vin minn (gottetta guðbjörg). bólgueyðandi pillurnar voru þarna líka en þetta reddaðist.
það er jafn líklegt að ég tali um leikinn í gær og að ég segi ykkur hvað ég eyddi í köben.
helvíti hressandi að fá haglél í smettið á hjólinu áðan. fínt að vera kominn heim!!
heyrumst.
posted by 4fl at 7:36 f.h.
mánudagur, apríl 24, 2006
hey da.
já kalllarnir mættir til koben. þokkalega heitt hérna og menn ekvað frekar chillaðir.
byrjuðum reyndar að taka lestina einni stöð of langt. en ég reddaði því audda. bara búinn að kaupa tvo diska (allt lokað í gær).
------ Magnúsdóttir afar spræk í Levi´s bolnum sínum. vildi samt heldur vera í fanginu hjá mér en halli!
tókum svo gott gúff, það fyrra í rosalegu bakarí og svo tortillaveisla. svo bakaði ég fólk í póker.
Eitthvað klassa fólk að sinna bekknum mínum. en annars : fáfnir snúðu fram, stebbi hættu að syngja, sækið anton yfir og hættið að rugla bóknum.
Heyrumst
posted by 4fl at 7:16 f.h.
|