föstudagur, febrúar 17, 2006
je.
verslaði mér nokkra aksessorís í apple búðinni í gær. kostaði fúlgu, en lúkkar svaðalega.
vann í ógeðiskulda á æfingu í gær. hallur næstum með tvö snöpp í röð. eysteinn kominn í lag og maggi dæmdi leikinn. haukur er samt enn að væla út af rangstöðunni.
í hvaða mynd er þetta: "This isn´t going to have a happy ending!" nákvæmlega. sá hana í gær, svaðaleg. solla er voðalega mikið að stúdera myndir frá 90-95! fínt að kíkja á þær aftur.
posted by 4fl at 8:32 f.h.
fimmtudagur, febrúar 16, 2006
jó.
jesús hvað það var kalt í morgun. setti meir að segja upp nýju 66° lambúshettuna mína (og hjólaði í skólann #$%$%&$/
annars bara fjör. erum að hlusta á robin hood í enskunni. erum líka byrjaðir með nýtt kerfi í skólastofunni sem felur í sér pastagjöf. er að virka vel.
stefnt á bíó í kveld. spurning með underworld þar sem systir mín flýtur með! annars á mar alltaf eftir að sjá cash.
posted by 4fl at 11:14 f.h.
miðvikudagur, febrúar 15, 2006
jev.
er hættur að fá drusluna hans eysteins lánaða út í glæsibæ. 3 gellur sáu mig panikka og stökkva aftur inn í rennandi bílinn, þar sem ég gleymdi að setja hann í "park". hver á annars sjálfskiptan bíl ennþá? en náði að sjálfsögðu að halda lúkkinu!
stóra upplestrarkeppnin var hjá bekkjunum okkar í dag. ég og smalinn voru partur af dómnefndinni. mætti meir að segja í peysu. soldið erfitt að "keep a straight face" allann tímann - en þessar elskur stóðu sig þokkalega vel.
bjallaði í magnús í gær - hélt að hann myndi pottþétt ekki svara þar sem hann var staddur á liverpool-arsenal og 5 mínútur eftir. en kallinn svaraði og til að toppa það þá skoraði luis og mar fékk stemmarann beint í æð. fékk mér líka dómara með leiknum, átti það alveg inni. en samt ekki - tapaði aftur á æfingu, og núna eftir fjandans úrslitamarksregluna :-( tók samt ekki snapp eins og hallur!
var að kaupa mér massa vax. þar sem simmi did not come through þá þurfti ég að svíkja lit og kaupa tigi vöru. en gott stöff. frændi og takefusa annars staddir á la manga - örugglega orðnir vel tanaðir. teitur örugglega bara með þá á ströndinni!!
aju
posted by 4fl at 2:31 e.h.
mánudagur, febrúar 13, 2006
jev.
nú verður mar að vera duglegur að skrifa. teljarinn farinn að setja pressu á mig!
töpuðum fyrir ungum áðan. þvílíkur skandall. náðum ekki einu sinni að nýta okkur að haukur var úber pirraður! svona er etta.
er ekki að kaupa að ég sé að fara á þjálfarafund á meðan liverpool rúllar yfir arsenal. er búinn að blóta Láka mikið.
er að horfa á ensku mörkin, ansi gott á José að tapa þrjú-núll fyrir middlesbrough. og klikkaði á að vera í fullham peysunni minni í dag.
valentínusardagurinn í dag. spurning með ekvað rómó.
posted by 4fl at 11:42 e.h.
jó.
kjadlinn er kominn með teljara! já - finaly. en held mig við appelsínugula/brúna 70´s lúkkið aðeins lengur. sama hvað baldur og fleiri segja!
annars bara frekar sprækur á mánudagsmorgni. leikritið í gær var í röglinu. það sem þessum leikstjóra dettur ekki í hug. og ingvar náttúrulega bara slakur eins og fyrri daginn - jev.
soldið fyndið að horfa á eysteinn úti í frímínútnavakt - ekki alveg nógu góður í bakinu. best að fara bodychecka hann niðrí mötuneyti. grjónagrautur á boðstólnum - er frekar ánægður með það þótt þið trúið því ekki.
aju
posted by 4fl at 12:14 e.h.
sunnudagur, febrúar 12, 2006
heyja.
sunnudagsmorgun - er ekki búinn að fara út í bakarí. ef þið trúið því. er massa stirður. klárlega pottur á eftir.
grút töpuðum í gær á móti víkingum. áttum ekki góðan dag. miðherjaparið okkar meiddist - en þrátt fyrir afar spes uppstillingu í seinni var sá hálfleikur betri ef eitthvað er. það er svo bara að massa etta fyrir fh um næstu helgi.
það er WOYZECK í kvöld. það verður örugglega töff.
heyrumst.
posted by 4fl at 10:44 f.h.
|