föstudagur, október 20, 2006
jess.
Helgin maður. ekki leiðinlegt.
erum búin að plögga miða á mýrina í kvöld. hlakka bara ekkert til. so leikhús á morgun. allt að gerast.
himmi greinilega í pakkanum í prag!
unnum í fjórða í dag. kiddi og rúnar g bara nokkuð nettir á línunni. svo tekur afmælisbarnið og eymi etta á morgun. good stöff!
annars bara sofa út takk. heyrumst.
posted by 4fl at 8:55 e.h.
þriðjudagur, október 17, 2006
jebba.
Helguera inn á, loksins. frekar sáttur með það. rooney fyrirliði - veit ekki með það.
Egillb í ökuskólanum 24/7 þessa vikuna. öfunda hann ekkert smá! annars er kjappinn nítján eftir tvo og eiginlega orðið löngu tímabært að fá sér skírteini. siggi bald bara ekkert út að eyrum með það.
tók monsters með sjötta bekknum í dag. hún klikkar aldrei.
mar er farinn að youtuba-a etta eins og ljónið. verður að passa sig.
en þetta er svo mikið fól að það hálfa væri nóg!
posted by 4fl at 11:06 e.h.
jó.
nýi sjöffulinn er hreint út sagt nettur.
svenni karls fimmtugur í dag. smelltum á kallinn einni viskí. gleymdi henni audda á kennaraborðinu og fékk 5 maura inn í matsal þar sem ég sat með skólastjóranum: "ingvi, það er brennivín á borðinu þínu"! ekki nógu sniðugt!
koma svo Köbenhavn!
posted by 4fl at 4:48 e.h.
mánudagur, október 16, 2006
aha,
hvernig gat ég gleymt ikea ferðinni okkar í gær. já, við og svona 50000 aðrir íslendingar létum sjá okkur. ég veit; sauðnaut. alla veganna, flott pleis, en kannski soldið stórt, og soldið langt í burtu. náði að kaupa hákarlabangsa fyrir maurana og nokkur ný plaköt.
yess, þriggja tíma tölvunámskeið á morgun! læra underline og svona!
hef samt meistaradeildina til að hugga mig. eins gott að hetjan verður i starting á miðvikudaginn. lettland, svíþjóð, sevilla, chealsea og real. þá getur hann eiginlega bara sagt etta gott.
styttist í kaiser chiefs. myndi ekki hata það.
posted by 4fl at 10:39 e.h.
jess.
eruði að grínast hvað ég var fúll yfir hvar ég lagði í laugum áðan. tók svona fimm hringi á nærstæðinu í von um að fá stæði í mínútufæri. allt kom fyrir ekki. annars komu nike free skórnir mínir sterkir inn á brettinu. fólk var soldið að horfa enda ég líka í flottu klappstýrusokkunum mínum. okey þetta var ekki nógu karlmannalega setning. alla veganna, sat svo einn í fimm mínútur í gufunni áður en ég fattaði að gufan var biluð.
hve leiðinleg er miðjugelludómarinn í "do you think you can dance?" svaðalegt.
hallur og dísa kíktu svo við á nýja bílnum sínum. tók audda smá húddara á kvikindinu. sjálfskiptur, með bakkcameru og alles.
eysteinn ekki nógu ferskur í dag eftir rjúpuleiðangurinn um helgina. varla hægt að kinda í honum.
sá Tekinn áðan. frekar fyndið kaffi. en eruði að grínast hvað næsti þáttur verður örugglega svaðalegur. farið frekar illa með badda hall.
Fór á Jackass í gær. í raun bara hægt að segja "ertað grínast í mér". 90 mínútna gargandi snilld. sá svo úr bond og missti mig næstum. sá samt ekki treilerinn úr mýrinni - ekki nógu ánægður með það.
úber kalt á gervigrasinu í dag. klikkaði á úlpunni en var með west ham húfuna sem betur fer. er búinn að mastera nýja trickið sem haukur sá henry gera á the valley.
posted by 4fl at 10:21 e.h.
|